151. löggjafarþing — 114. fundur,  12. júní 2021.

mótun heildstæðrar stefnu um afreksfólk í íþróttum.

81. mál
[23:00]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Það gleður mig mjög að koma hér í kjölfar samflokkskonu minnar, hv. þm. Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur, sem fyrir hönd allsherjar- og menntamálanefndar flutti nefndarálit þar sem lagt er til að þingsályktunartillaga mín um mótun heildstæðrar stefnu um afreksfólk í íþróttum verði samþykkt í þingsal hér á eftir. Ég er mjög þakklát og ánægð og mig langar að byrja þessa stuttu ræðu, sem ég hef hugsað mér að halda af þessu tilefni, á því að vera aðeins á persónulegu nótunum.

Það er nú svo að íþróttir hafa leikið stórt hlutverk í ævi minni. Ég stundaði íþróttir, held ég svei mér þá í yfir 20 ár, var samhliða og síðar meir í stjórnum íþróttafélaga, ráðum, nefndum, vann ráðgjafarstörf, tók þátt í nefndarstörfum, hef starfað sem íþróttablaðamaður og svo, eins og mjög margir náttúrlega, hef ég verið foreldri barna sem stunda íþróttir og tengst vinnu þeirra íþróttafélaga. Síðast en ekki síst eru ótaldar þær ánægjustundir, yfirleitt ánægjustundir, sem ég hef átt hin síðari ár sem áhorfandi að íþróttaviðburðum. Íþróttir hafa því leikið virkilega stórt hlutverk í lífi mínu.

Svipað mál og það sem ég flutti í annað skipti í vetur var fyrst flutt af þáverandi hv. þingmanni, Ragnheiði Ríkharðsdóttur, sem lagði fram fyrstu tillöguna haustið 2012 um að mótuð yrði heildstæð stefna fyrir afreksfólk í íþróttum. Málið hlaut ekki brautargengi og hefur ekki gert á þeim tæplega tíu árum sem liðin eru síðan. Ég held að þetta sé í fjórða skipti sem mál af þessum toga kemur fram og ég er gríðarlega ánægð með að sjá nú fram á að það þurfi ekki að leggja það fram oftar.

Staðan er sú að afreksíþróttir hafa skipað mjög veglegan sess meðal landsmanna. Afreksíþróttafólkið okkar er auðvitað frábær landkynning á erlendri grundu og veitir okkur margar gleðistundir hér heima. Á sama tíma er okkur öllum sífellt ljósara hversu mikilvægt það er að börn og ungmenni hafi góðar fyrirmyndir á þessu sviði. Það mikilvægi gengur í báðar áttir vegna þess að það er akkúrat úr grasrótinni, frá því öfluga barna- og unglingastarfi sem við eigum, sem okkar frábæra afreksfólk rís. Það er mjög mikilvægt fyrir börn og unglinga, mikilvægara nú en nokkru sinni áður. Þegar við höfum fyrir framan okkur niðurstöður kannana sem sýna fram á þann fjölda íslenskra barna sem ekki fær nægilega hreyfingu, þegar við vitum að lífsstílstengdir sjúkdómar eru ein stærsta áskorunin sem heilbrigðiskerfið stendur frammi fyrir þá skiptir þetta máli. Hreyfingin hefur ekki eingöngu áhrif á líkamlega burði einstaklinga heldur líka andlegan þroska, þroska heilans.

Margt hefur verið gert af hálfu hins opinbera til að mæta þessari vitneskju, mikilvæginu sem við vitum að er að finna í starfi íþróttahreyfingarinnar. Margt hefur verið gert af hálfu sérsambanda innan íþróttahreyfingarinnar sem hefur gert þeim kleift að halda úti landsliðum og taka þátt í alþjóðastarfi sem fulltrúar Íslands. En það hefur skort upp á. Síðastliðinn áratug hefur íslenskt afreksíþróttafólk reglulega vakið athygli á slæmri fjárhags- og réttindastöðu sinni. Fyrir u.þ.b. einu og hálfu ári síðan, í desember 2019, skrifaði hópur afreksíþróttafólks undir beiðni til mennta- og menningarmálaráðuneytis, íþróttamálaráðuneytisins og annarra sem málið varðar sem var áskorun um að vinna í launa- og réttindamálum íslensks afreksíþróttafólks. Í yfirlýsingu hópsins kom m.a. fram að árangurstengdir styrkir frá afrekssjóði ÍSÍ væru oftar en ekki einu tekjur afreksíþróttafólks til að fjármagna keppnis- og æfingaferðir. Þeir væru ekki skilgreindir sem laun sem leiðir til þess að þetta afreksíþróttafólk vinnur sér ekki inn réttindi á meðan á ferlinu stendur og stendur því margt uppi með skuldir á bakinu og réttindalaust eftir að ferlinu lýkur, án lífeyrisréttinda, stéttarfélagsaðildar, atvinnuleysisbótaréttar, aðgengis að sjúkra- og starfsmenntasjóði eða réttinda til fæðingarorlofs, svo að eitthvað sé nefnt.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur mótað afreksstefnu sína þar sem settar hafa verið fram tímabundnar og markvissar áætlanir um frammistöðu á stórmótum og til að tryggja slagkraft markmiðanna til langframa á samkvæmt því að horfa á keppnisárangur og styrkja eigin getu og hæfileika hreyfingarinnar til að vinna að langtímamarkmiðum í afreksíþróttum. Mörg íþróttafélög í samvinnu við sveitarfélög hafa gert slíkt hið sama.

Nú er vonandi komið að því að samþykkja eða a.m.k. bera hér undir atkvæði í þingsal tillögu um að það verði ráðherra sem móti slíka heildstæða stefnu og að stefnan feli bæði í sér faglegan og fjárhagslegan styrk, þetta er ekki hægt að skilja í sundur, og að mínu mati liggur stefnan þar ofan á. Mótuð verði heildstæð stefna og á eftir fylgi m.a. vinna við að fara í gegnum fjárhagslegu hliðina þannig að stefnan verði tímasett. Breytingartillaga fylgir með álitinu vegna þess að tíminn líður jú mjög hratt og tillagan eins og ég lagði hana fram gerir ráð fyrir að stefnan taki gildi 1. júní á þessu ári en breytingartillagan gerir ráð fyrir að tímasett stefna verði tilbúin fyrir júní 2022.

Þetta er mjög gott og mikilvægt mál. Það tryggir öryggi afreksíþróttafólksins okkar þegar stefnan kemur til framkvæmda og það sendir, á meðan á vinnunni stendur og ef og þegar málið verður samþykkt í kvöld, skýr skilaboð til þessa hóps, afreksíþróttafólksins okkar og þeirra sem stefna þangað, um að við ætlum að gera okkar besta til að búa svo um hnútana að framtíð þeirra verði kannski ekki tryggð en a.m.k. að tryggt sé að þau séu ekki skilin eftir.

Mig langar sérstaklega að nefna hér að lokum að samhliða þessari tillögu hefur verið fjallað hér í kvöld um tillögu til þingsályktunar um launasjóð íslensks afreksfólks og ég ætla að lýsa ánægju minni með það. Hér í álitinu er því beint til ráðuneytisins að horft verði til þeirrar tillögu, þ.e. um launasjóð afreksíþróttafólks, í þeirri stefnumótunarvinnu sem þessi tillaga felur í sér, mjög eðlilegt og ég hef fulla trú á að sú samþætting stytti vinnuferilinn og geri málið enn sterkara.

Ég þakka að lokum hv. allsherjar- og menntamálanefnd kærlega fyrir vinnuna, fyrir jákvætt nefndarálit og hlakka til afgreiðslunnar hér síðar í kvöld eða nótt.