151. löggjafarþing — 114. fundur,  12. júní 2021.

þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.

588. mál
[23:22]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Ég bara verð að koma upp til að segja: Takk. Ég þakka fyrir það að við séum komin með leiðsöguhundafrumvarpið til atkvæðagreiðslu í kvöld. Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað það er stórkostlega mikilvægt fyrir blinda og sjónskerta einstaklinga að geta eignast slíkt hjálpartæki sem leiðsöguhundur er. Í dag bíða 18 einstaklingar eftir slíku úrræði og að meðaltali hefur einum leiðsöguhundi verið úthlutað á ári þannig að sá sem er nr. 18 í röðinni þyrfti þá að bíða í 18 ár eftir að fá þessa hjálp.

Virðulegi forseti. Ég hef fulla trú á því, og hjarta mitt segir mér það, að við tökum utan um málið í kvöld. Við munum ganga glöð inn í nóttina vitandi að við erum búin að gera góðverk. Ég þakka hv. velferðarnefnd og öllum þeim sem hafa tekið utan um málið fyrir að það skuli vera komið hingað til okkar í kvöld. Eins og ég segi: Fyrir okkar hönd, blindra og sjónskertra, er ekkert annað en bjartsýni og bros hjá þessari konu að þessi atkvæðagreiðsla hljóti farsælan endi.