opinber fjármál.
Forseti. Ég flyt hér nefndarálit með frávísunartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinber fjármál, mat á áhrifum stjórnarfrumvarpa. Umsagnir bárust frá félaginu Femínísk fjármál, Kvenréttindafélagi Íslands, Landvernd, fjármála- og áhættustýringarsviði Reykjavíkurborgar og Ungum umhverfissinnum. Með frumvarpinu er lagt til að við mat ráðherra á áhrifum stjórnarfrumvarpa verði sérstaklega litið til tveggja meginþátta til viðbótar við mat á fjárhagslegum áhrifum frumvarpa, þ.e. til mats á loftslagsáhrifum auk þess sem jafnréttismat það sem framkvæmt hefur verið á hluta frumvarpa verði gert að almennri reglu.
Í umfjöllun nefndarinnar fengum við gesti, þá sem sendu inn umsagnir, og það kom fram í þeirra umsögnum að það væri tvímælalaust þörf á þessu eða eins og Kvenréttindafélag Íslands sagði í umsögn sinni að þau markmið um jafnréttismat sem ættu að fylgja hefðu ekki náðst og enn vantaði upp á innleiðingaráætlun um kynjaða fjárlagagerð. Landvernd taldi að frumvarpið gæti styrkt umhverfisþátt lagafrumvarpa þar sem umhverfissjónarmið ættu að liggja fyrr fyrir í vinnsluferli þeirra því að oft þegar kemur að þeim hluta er það orðið of seint. Of seint til þess að breyta eða draga úr óæskilegum áhrifum á umhverfið. Landvernd taldi einnig að það fæli frekar í sér umhverfisáhrif frekar en einungis loftslagsáhrif sem væri mjög jákvætt að sjá, mun almennara og væru líka loftslagsáhrif. En loftslagsáhrifin eru einmitt mikilvæg á allra næstu árum og taka yrði meira tillit til þess.
Ungir umhverfissinnar komu inn á að oft væri gagnrýnt að mat á umhverfisáhrifum væri kostnaðarsamt en það stæðist samt ekki skoðun því að það væri einmitt dýrara til framtíðar að huga ekki að umhverfisáhrifum og Reykjavíkurborg kom einmitt nánar inn á það og fjallaði um það hvernig mat á umhverfisáhrifum sem þau eru með í sínu verklagi sparar í rauninni fjármagn, sérstaklega þegar þau líta til þess ferlis sem menn nota við mat á umhverfisáhrifum þar sem öll mál og allar ákvarðanir fara í gegnum skimun um það hvort og hversu nákvæmlega þurfi að leggja í umhverfismat öll mál hjá þeim. Reynsla borgarinnar sýnir að þetta vinnulag kostar hvorki aukamannafla né felur í sér aukinn kostnað þar sem þetta ferli felur einnig í sér mjög verðmæta vinnu.
Þarna stendur málið í rauninni að mati umsagnaraðila. Nefndin leitaði til umhverfisráðuneytisins, fjármálaráðuneytisins og jafnréttismálaráðuneytisins, það er í rauninni hjá forsætisráðherra, en einungis fjármálaráðuneytið svaraði, þar sem þetta á við lög um opinber fjármál og þar komu fram áhugaverð sjónarmið og réttmætar ábendingar að vissu leyti. Já, það vantar tvímælalaust að taka tillit til þessara þátta en upp á ákveðna nákvæmni og framsetningu að gera þá nær þetta mögulega til fleiri lagabálka en bara laga um opinber fjármál, til ýmissa sérlaga þar sem þyrfti að útfæra betur lagaákvæði eða verkferla sem tengjast sérlögum. Það var í rauninni þar sem nefndin kláraði sína vinnu við þetta frumvarp — að fara mun nánar út í það hvað þyrfti til til að ná yfir bæði svið sérlaga og laga um opinber fjármál, að það væri í rauninni bara nákvæmara að fá betri undirbúningsvinnu frá framkvæmdarvaldinu til þess að leggja línurnar um hvernig þetta leggst yfir nokkur ráðuneyti og lög um opinber fjármál almennt. Að mati meiri hlutans hefur komið í ljós að meta þarf betur þau áhrif sem frumvarpið mun hafa á lög um opinber fjármál og eftir atvikum á önnur lög og í ljósi þess umfangs og þeirra sjónarmiða sem hafa komið fram við vinnslu þess leggur meiri hlutinn til að málinu verði vísað til ríkisstjórnar og lagt er til að fjármála- og efnahagsráðuneytið taki tillögur frumvarpsins til athugunar þegar verður farið í heildarendurskoðun laga um opinber fjármál.
Undir þetta rita hv. þingmenn, Willum Þór Þórsson, formaður fjárlaganefndar, sá sem hér stendur, framsögumaður nefndarálits, Haraldur Benediktsson, Inga Sæland, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Páll Magnússon og Steinunn Þóra Árnadóttir. Jón Steindór Valdimarsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur afgreiðslu málsins. Ég myndi bara vilja leggja áherslu á að það er þörf á heildarendurskoðun á lögum um opinber fjármál, en að mjög miklu leyti á þeim forsendum að það er framkvæmd þeirra sem er ábótavant, þ.e. það er ekki farið eftir lögunum eins og þau eru rituð og það þarf að greina mjög vel hvar pottur er brotinn, af hverju hann er brotinn og hvernig hægt er að koma þessum grundvallaratriðum um jafnréttismat og mat á umhverfisáhrifum og loftslagsáhrifum inn í það ferli.