151. löggjafarþing — 114. fundur,  13. júní 2021.

brottfall laga um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis.

558. mál
[00:37]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Tillagan hér fjallar um það að Ísland gerist ekki olíuríki. Það er tillagan. Er það svo klikkað árið 2021 að taka þá afstöðu? Ég hygg ekki og hygg reyndar að kjósendur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og þingmenn þess ágæta flokks myndu taka undir það. Það er hin prýðilegasta hugmynd en af einhverjum ástæðum ákveður Vinstrihreyfingin – grænt framboð ekki að styðja málið heldur vísa því til ríkisstjórnarinnar, væntanlega til þess að gefa þessu máli það yfirbragð að eitthvað muni mögulega gerast hjá næstu ríkisstjórn sem enginn veit hvernig verður. En það kom skýrt fram í umræðunum hér fyrr í dag að það er algerlega óljóst hver framtíð málsins verður og það kemur beinustu leið úr munni hv. þm. Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur. Ég skora á fólk að fletta upp umræðunum til að fá staðfestingu á því. Ástæðan fyrir því að mínu mati að Vinstrihreyfingin – grænt framboð styður ekki málið er sú að hún getur ekki stutt svona mál með Sjálfstæðisflokkinn með sér í liði. Það er fórnarkostnaðurinn og það er lexían sem ég vona að kjósendur læri.