151. löggjafarþing — 114. fundur,  13. júní 2021.

mótun heildstæðrar stefnu um afreksfólk í íþróttum.

81. mál
[00:42]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Við greiðum hér atkvæði um einfalda tillögu sem felur í sér að fela mennta- og menningarmálaráðherra, ráðherra íþróttamála, að móta heildstæða stefnu um afreksfólk í íþróttum í samvinnu við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og sveitarfélögin. Stefnan verði tímasett samhliða því að tryggður verði fjárhagslegur stuðningur við okkar afreksíþróttafólk. Það gleður mig alveg ótrúlega að líta á atkvæðatöfluna og sjá stuðninginn við þetta löngu tímabæra mál sem hefur verið flutt áður og mér er bæði ljúft og skylt að nefna þann hv. þingmann sem fyrst flutti þessa tillögu fyrir tíu árum, hv. fyrrverandi þingmann, Ragnheiði Ríkharðsdóttur. Nú er komið að því að Alþingi samþykki þetta. Það eru margir sem munu gleðjast í kvöld.