151. löggjafarþing — 114. fundur, 13. júní 2021.
þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.
588. mál
Virðulegi forseti. Enn á ný vil ég koma auðmjúk og þakka hv. velferðarnefnd fyrir að hafa komið með þetta fallega mál hingað inn. Ég efast ekkert um að við tökum utan um það af öllu hjarta. Ég segi bara fyrir mína parta sem lögblindur einstaklingur: Mikið hefði nú lífið verið mér auðveldara á margan hátt ef ég hefði fengið eins frábært hjálpartæki og leiðsöguhundur er fyrir fólk í þeirri stöðu að þurfa að búa við fötlun sem blinda og mikil sjónskerðing er. Þakka ykkur fyrir.