151. löggjafarþing — 115. fundur,  13. júní 2021.

breyting á kosningalögum sem samþykkt voru á Alþingi, 12. júní 2021.

869. mál
[00:58]
Horfa

Flm. (Birgir Ármannsson) (S):

Herra forseti. Þegar stefndi í samþykkt kosningalaganna, sem við afgreiddum hér áðan, þá fórum við þingflokksformenn í ákveðið verkefni sem við þurftum að leysa úr. Niðurstaða okkar í því sambandi var að gera þá tillögu sem hér liggur fyrir, að í stað þess að þegar við samþykkt laganna verði kjörin ný landskjörstjórn þá verði skipuð undirbúningsnefnd sem falið verði að vinna að undirbúningi framkvæmdar laganna. Með því móti höldum við því fyrirkomulagi að landskjörstjórn sé kjörin þegar að loknum kosningum, og það verður þá í haust. En til þess að tæknilegur undirbúningur undir innleiðingu laganna frestist ekki alveg þangað til þá gerum við tillögu um undirbúningsnefnd sem skipuð verði fulltrúum tilnefndum af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, forsætisnefnd Alþingis og dómsmálaráðuneytinu, til að sinna þeim verkefnum sem þar greinir.