151. löggjafarþing — 116. fundur,  13. júní 2021.

veiting ríkisborgararéttar.

867. mál
[01:13]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Forseti. Þetta er í fjórða sinn sem ég sit í nefndinni sem heldur utan um veitingu ríkisborgararéttar þingsins. Því miður er það svo að þeim fækkar alltaf sem fá náð fyrir augum nefndarinnar og alltaf þrengist um tímann sem við fáum til vinnunnar. Þó að ég hafi aldrei komið öllum að sem ég vildi þá hef ég alltaf getað staðið með málsmeðferð nefndarinnar í þessum sal með góðri samvisku og talað fyrir henni vegna þess að hingað til hefur okkur alltaf auðnast að veita þeim ríkisborgararétt sem annars væru í raunverulegri hættu á að vera vísað úr landi í óvissu og örbirgð. Það á því miður ekki við í þetta sinn, herra forseti. Á meðan ég samgleðst að sjálfsögðu öllu því frábæra fólki sem verður að íslenskum ríkisborgurum í dag og ég greiði þessu frumvarpi atkvæði mitt þá vantar nafn á þennan lista sem tilheyrir manneskju sem er í raunverulegri hættu á að vera vísað úr landi í óvissu og örbirgð. Ég get ekki með góðri samvisku, herra forseti, stutt þá niðurstöðu.