þingfrestun.
Forseti Íslands gjörir kunnugt:
„Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 151. löggjafarþings, frá 12. júní 2021 eða síðar, ef nauðsyn krefur.
Gjört á Bessastöðum, 12. júní 2021.
Guðni Th. Jóhannesson.
________________
Katrín Jakobsdóttir.
Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“
Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég því yfir að fundum Alþingis, 151. löggjafarþings, er frestað. Ég vil nota tækifærið og þakka alþingismönnum og starfsfólki Alþingis og hæstv. forseta fyrir gott samstarf, ekki bara í vetur heldur þetta kjörtímabil.
Eins og áður er fram komið munu kosningar til Alþingis fara fram þann 25. september næstkomandi eða rúmum mánuði áður en kjörtímabil þingmanna rennur út og mun ég því leita atbeina forseta Íslands til að rjúfa þing sem kunngert verður í fyrsta lagi 12. ágúst næstkomandi með forsetabréfi sem birt verður í Stjórnartíðindum. — Gleðilegt sumar.