151. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júlí 2021.

framhaldsfundir Alþingis.

[11:01]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Forseti Íslands gjörir kunnugt:

„Forsætisráðherra hefir tjáð mér að nauðsyn beri til vegna áformaðra alþingiskosninga í september að kveðja Alþingi saman hið fyrsta til að lagfæra mistök sem urðu við þinglega meðferð og afgreiðslu lagaákvæða um listabókstaf stjórnmálasamtaka á nýliðnu vorþingi.

Fyrir því hefi ég ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda þriðjudaginn 6. júlí 2021 kl. 11.

Gjört í Reykjavík, 2. júlí 2021.

Guðni Th. Jóhannesson.

 

________________

Katrín Jakobsdóttir.

 

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“

Ég býð hæstv. forseta og hv. alþingismenn velkomna til þingfundastarfa við þessar óvenjulegu aðstæður.