uppbygging heilbrigðiskerfisins.
Herra forseti. Í viðtölum að undanförnu hefur hæstv. heilbrigðisráðherra orðið tíðrætt um að stóru verkefni næsta kjörtímabils verði að stórbæta heilbrigðiskerfið og laga rekstrargrunn hjúkrunarheimila. Þetta er sami ráðherra og talaði um fyrir fjórum árum að þau væru komin í ríkisstjórn til að bjarga heilbrigðiskerfinu. En þó hefur engu verið bætt inn í rekstrargrunn hjúkrunarheimila þó að legið hafi fyrir allt kjörtímabilið að það hafi vantað. Biðlistar hafa lengst í kerfinu. Öryggi kvenna hefur raskast vegna stórfellds klúðurs við leghálsskimanir. Á allra síðustu dögum hafa 985 læknar sent neyðarkall til stjórnvalda og mótmælt langdregnu sinnuleysi í garð heilbrigðiskerfisins og Ljósmæðrafélag Íslands hefur sent heilbrigðisráðherra minnisblað þar sem varað er við að stefni í neyðarástand í fæðingarhjálp í sumar.
Við þessari alvarlegu stöðu þarf svo sannarlega að bregðast og Samfylkingin vill mikla uppbyggingu í heilbrigðiskerfinu. En nú ætlar VG sem sagt inn í kosningarnar með loforð um að gera það fyrir heilbrigðiskerfið á næsta kjörtímabili sem þau ætluðu sér síðustu fjögur ár. Þau ætla að gera það með sama stjórnarmynstri þrátt fyrir að stjórnarliðar skjóti nú föstum skotum að heilbrigðisráðherra og segi t.d. að Sjálfstæðisflokkurinn geti ekki tekið þátt í ríkisstjórn sem haldi áfram stefnu heilbrigðisráðherra, þrátt fyrir að í fimm ára fjármálaáætlun núverandi ríkisstjórnar eigi að ráðast í afkomubætandi ráðstafanir upp á 120 milljarða, sem kallast á mannamáli annaðhvort niðurskurður eða skattahækkanir.
Spurningin er: Hvernig hyggst hæstv. ráðherra ná árangri í að leysa þessi gríðarlega stóru vandamál á næstu árum í samstarfi við flokk sem er algerlega á öndverðum meiði um það sem þarf að gera í þessum mikilvæga málaflokki?