151. löggjafarþing — 119. fundur,  6. júlí 2021.

uppbygging heilbrigðiskerfisins.

[13:05]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Loga Einarssyni, sem ákveður að spyrja mig um heilbrigðismál þó að hæstv. heilbrigðisráðherra sé hér til svara og örugglega best að sér í þessum sal til að ræða stöðuna í heilbrigðismálum landsins. En ég verð þó að byrja á því að leiðrétta hv. þingmann þegar hann kemur hér upp og lætur sem ekkert hafi verið gert í heilbrigðismálum á þessu kjörtímabili, því að ekkert er fjær lagi. Staðreyndin er sú að útgjöld til heilbrigðismála hafa verið aukin á hverju einasta ári á þessu kjörtímabili. Það er staðreynd. Staðreyndin er sú að þau hafa aukist, ekki bara í krónutölu heldur líka sem hlutfall af vergri landsframleiðslu. Staðreyndin er sú að núverandi heilbrigðisráðherra hefur gert það sem margir hafa sagst ætla að gera og það er að taka raunveruleg skref til að gera heilsugæsluna að fyrsta viðkomustað í kerfinu, nokkuð sem við erum búin að tala um í þessum sal í 13 ár, a.m.k. síðan ég var kjörin á þing, nokkuð sem komið hefur fram ítrekað í stefnum og ákvörðunum en er fyrst núna verið að gera. Þannig að heilsugæslan hefur verið verulega styrkt og þar sjáum við nú gerbreytta þjónustu með aukinni teymisvinnu og miklu fjölbreyttari þjónustu en áður.

Núverandi heilbrigðisráðherra hefur lækkað kostnað sjúklinga. Það er nú mál sem við ræddum ekki lítið á síðasta kjörtímabili og því þarsíðasta og þar-þarsíðasta. Og nú fyrst er kostnaður sjúklinga á Íslandi orðinn sambærilegur við það sem gerist á Norðurlöndum en var verulega miklu hærri fyrir þetta kjörtímabil.

Eru óunnin verkefni í heilbrigðismálum? Já, þetta er risastór málaflokkur og hann á eftir að stækka, ekki síst vegna þess að aldurssamsetning þjóðarinnar er að breytast. Og það tengist auðvitað því sem hér er rætt um hjúkrunarheimilin, sem verður áfram stórmál. Ég held að við hv. þingmaður séum sammála um að þar þarf bæði að horfa til aukinna fjárveitinga en líka að skoða fjölbreyttari úrræði. En það er ekki hægt að koma upp og láta eins og hér hafi verið kyrrstaða í heilbrigðismálum því að það er svo sannarlega ekki þannig.