uppbygging heilbrigðiskerfisins.
Herra forseti. Það er ekki svo að ég víki mér undan að svara spurningum, en auðvitað hlýt ég að leiðrétta forsendur spurningarinnar ef ég tel þær vera rangar. Út frá orðum hv. þingmanns mátti greina þá skoðun, sem ég tel vera ranga, að hér hafi ekkert verið aðhafst í heilbrigðismálum á kjörtímabilinu og ekki verið staðið við þau stefnumál sem hæstv. heilbrigðisráðherra boðaði í upphafi kjörtímabils. Bygging Landspítala loksins farin af stað. Kostnaðarþátttaka sjúklinga loksins farin af stað, hún hefur farið niður á við til samræmis við önnur Norðurlönd. Heilsugæslan, sem ég nefndi hér áðan o.s.frv. Þótt hv. þingmaður vilji kannski gjarnan fá mig í stjórnarmyndunarviðræður í þessum óundirbúnum fyrirspurnum (Gripið fram í.) þá ætla ég ekki að fara þangað, þó að það kunni að vera gott sjónvarpsefni fyrir þá sem sitja spenntir yfir þessum óundirbúna fyrirspurnatíma.
Stóra málið í þessu er auðvitað að Vinstrihreyfingin – grænt framboð lagði fram skýra stefnu í þessum málaflokki fyrir kosningar og hún hefur náð árangri undir forystu hæstv. heilbrigðisráðherra. Það er stóra málið.