birting skýrslu um eignarhald í sjávarútvegi.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég vil fyrst segja að ég veit ekki hvar nákvæmlega þessi skýrsla er stödd og ég átta mig heldur ekki á því, ég veit að hæstv. ráðherra óskaði eftir fresti á skilum. En ég skal koma þeim skilaboðum til hæstv. ráðherra. Ég er sammála hv. þingmanni að ég held að það sé mjög mikilvægt að fá þessa skýrslu fram. Ég held að það sé eðlilegt að ráðherrar leitist við að verða við því þegar Alþingi beinir til þeirra ósk um skýrslur og þeir eiga að verða við slíkum beiðnum. Og séu einhverjar forsendur til þess að slíkar beiðnir taki lengri tíma í vinnslu ber ráðherrum að gera þinginu grein fyrir því, eins og ég þurfti að gera varðandi tiltekna skýrslubeiðni frá hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni. Þeim ber að gera Alþingi grein fyrir því. Ég þekki ekki til þess hver staðan er í því efni hjá hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra en ég mun koma þessum skilaboðum á framfæri og ég er sammála hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur að það er mikilvægt að fá þetta fram í ljósi þess að beiðnin var lögð fram og samþykkt af Alþingi.
Síðan vil ég segja að það kom út önnur skýrsla af hálfu hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um stöðu íslensks sjávarútvegs, sem er mjög góð, þar sem farið er yfir stöðu greinarinnar hér á landi, líka í alþjóðlegum samanburði. Það er merkilegt að sjá bæði verðmætasköpun í innlendum sjávarútvegi, hvað gert hefur verið til að draga úr losun í innlendum sjávarútvegi og hvernig þróunin hefur verið hvað varðar arðsemi, sem hv. þingmaður nefnir. Það er gott undirstöðugagn í þeim gögnum sem ég held að muni nýtast öllum stjórnmálaflokkum vel við sína stefnumótun þótt niðurstöður þeirra kunni að verða ólíkar varðandi hvað lagt er til. En í þeim efnum held ég að við eigum að setja okkur mjög skýr markmið, bæði hvað varðar hlutverk sjávarútvegsins í samfélagi og umhverfi og að sjálfsögðu í efnahagslífinu, eins og hv. þingmaður er hér að ræða.