151. löggjafarþing — 119. fundur,  6. júlí 2021.

birting skýrslu um eignarhald í sjávarútvegi.

[13:22]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Af því að hér er hafin umræða um stefnu flokkanna í þessum ágæta óundirbúna fyrirspurnatíma þá vil ég segja að það fylgja því líka hættur að setja allar aflaheimildir á uppboð. Við þurfum að huga að hættunni sem skapast á samþjöppun við slíka útfærslu, eins og hv. þingmaður þekkir, því að við viljum ekki taka áhættu á meiri samþjöppun í sjávarútvegi, og við þurfum líka að skoða hin byggðatengdu áhrif.

Hvað varðar tímabindingu heimilda mælti ég sjálf fyrir frumvarpi sem var lagt fram af þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Steingrími J. Sigfússyni, og var mikil andstaða hér í þessum sal (Gripið fram í.) þegar lögð var til tímabinding aflaheimilda í gegnum nýtingarsamninga. Ég leyfi mér að rifja það upp að þáverandi stjórnarandstaða Sjálfstæðisflokks, sem hv. þingmaður kannast nú eitthvað við á þeim tíma, og Framsóknarflokks ólmaðist á móti tímabindingu samninga á þeim tíma og því miður stefndi allt í að ekki yrði meiri hluti fyrir því máli. Þá hefði kannski verið hægt að vísa veginn til framtíðar hvað þau mál varðar.