151. löggjafarþing — 119. fundur,  6. júlí 2021.

wstaða fórnarlamba kynferðisofbeldis.

[13:24]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Kenningar um þrískiptingu ríkisvaldsins eru raktar allt til 18. aldar heimspekinga og fræðimanna upplýsingarinnar og ætla ég sérstaklega að tala um Montesquieu og bók hans um lögin. Ég geri það vegna þess að ég áhyggjufull yfir því hvert við erum að stefna sem samfélag. Ég er áhyggjufull yfir réttarríkinu okkar. Mér finnst alveg ömurlegt að horfa upp á það, nú þegar við getum státað af því að vera komin með þriðja dómstigið, millidómstigið sem mikið var kallað eftir, að staðan skuli vera orðin sú að við séum komin með fjórða dómstigið, algerlega óumbeðið, og það er dómstóll götunnar. Hvers vegna? Hvers vegna finna einstaklingar sig knúna til þess að fara með mál sín og vanda til dómstóls götunnar? Það er vegna þess að réttarkerfið okkar, réttarvörslukerfið okkar, dómskerfið okkar, er að bregðast þessu fólki. Við horfum upp á fórnarlömb kynferðis og ofbeldis sem eiga engin önnur úrræði en að leita á náðir dómstóls götunnar þannig að það skiptir engu máli að sá sem lendir fyrir því, hvort hann er sekur eða saklaus, er tekinn úr umferð. Það er ekki flóknara en það. Þetta erum við að horfa upp á ítrekað, við sem segjum að við byggjum á lýðræði, við búum við lýðveldi, segjumst vera með réttarríki.

Þess vegna spyr ég hæstv. forsætisráðherra: Hvað getum við gert? Ég trúi því af öllu hjarta að hæstv. forsætisráðherra hafi áhyggjur af þessari þróun og við sem löggjafi hljótum að verða að bregðast við. Við hljótum að verða að gera eitthvað og senda frá okkur skilaboð. Við búum við réttarríki, við eigum réttarvörslukerfi, við bjuggum til almenn hegningarlög og viðurlög við að brjóta þau. Hvers vegna tökum við ekki utan um þetta allt sem við erum að byggja upp (Forseti hringir.) og reynum að halda því til haga áður en við horfum hreinlega á réttarríkið okkar molna niður fyrir framan augun á okkur?