staða fórnarlamba kynferðisofbeldis.
Herra forseti. Eins og ég kom hér að undir lok míns fyrra svars er það er bara þannig í samtímanum að við búum við gerbreytt umræðuumhverfi frá því sem var. Að sjálfsögðu er ekki allt satt sem þar er haldið fram og það er erfitt fyrir fólk að leggja mat á hvað er satt og rétt. En þannig er hin frjálsa umræða og um hana verðum við að standa vörð. Undir öllum kringumstæðum verðum við að standa vörð um tjáningarfrelsið. Það sem við getum hins vegar gert er að styðja við réttarríkið, og ég fór hér yfir það sem hefur verið sérstaklega gert varðandi kynferðisbrotamálin. En gleymum því ekki heldur að það er ekki langt síðan, af því að hv. þingmaður nefndi hér stofnun Landsréttar sem var m.a. settur á fót til að koma til móts við þá gagnrýni sem var uppi um að ekki færi fram endurmat á sönnunarfærslu fyrir Hæstarétti. Það er auðvitað gríðarlegt framfaraskref fyrir okkar réttarríki. Þannig að ég verð nú að segja það, af því að hv. þingmaður lýsti hér áhyggjum af réttarríkinu: Það stendur traustum fótum á Íslandi. Það gerir það og við höfum verið að stíga góð skref á undanförnum árum til að styrkja enn stöðuna þess.