innleiðing þjónustutengds fjármögnunarkerfis í heilbrigðisþjónustu.
Hæstv. forseti. Í október síðastliðnum kom út skýrsla sem ber heitið Aukin framleiðni og gæði heilbrigðisþjónustu með nýju fjármögnunarkerfi og leiðbeinandi viðmiðum. Í þeirri skýrslu má sjá að hún kom út í samræmi við markmið heilbrigðisstefnu sem sett var hér. Það var sem sagt ákveðið að innleiða þjónustutengt fjármögnunarkerfi sem byggist á alþjóðlegu flokkunarkerfi sem við köllum DRG. Kerfið er ætlað fyrir kaup á allri sjúkrahúsþjónustu, og að flokka þau kaup, og sambærilegri þjónustu sem veitt er í einkarekstri utan sjúkrahúsa sem og innan opinbera kerfisins. Ég vil leyfa mér að vitna hér óbeint til orða hæstv. heilbrigðisráðherra sem segir í inngangsorðum að öllum sé það ljóst að mönnun íslenska heilbrigðiskerfisins til framtíðar sé mikil áskorun. Það er því nauðsynlegt að hraða þessari innleiðingu þar sem nú er hægt að fullyrða að nýta þarf fjármuni með skynsamlegum hætti, bæði hvað varðar mönnun og veitingu þjónustunnar. Ég segi þetta af því að nú höfum við undanfarið lesið í fréttamiðlum neyðarákall frá læknum á bráðamóttöku Landspítala, einnig frá fæðingar- og kvensjúkdómalæknum í sambandi við skimunarmálið svokallaða og fleiri aðilum innan kerfisins.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Hvar er innleiðing þessarar vinnu stödd? Hversu mikið fjármagn hefur verið veitt til hennar? Hversu mikið þarf til að klára innleiðingu? Og eins vil ég spyrja út í tímalínuna ásamt því að fá svör við því hvernig hæstv. heilbrigðisráðherra ætlar að svara neyðarákalli starfsmanna heilbrigðiskerfisins.