151. löggjafarþing — 119. fundur,  6. júlí 2021.

innleiðing þjónustutengds fjármögnunarkerfis í heilbrigðisþjónustu.

[13:37]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka enn hv. þingmanni fyrirspurnina. Þetta er og verður mjög mikilvægur þáttur sem hv. þingmaður dregur hér fram, við yfirfærsluna yfir í aukna áherslu á DRG-fjármögnun, sem á auðvitað líka eftir að koma til kasta og inn á borð hv. fjárlaganefndar í auknum mæli. En það verður aldrei þannig að DRG-kerfið henti allri öllum tegundum heilbrigðisþjónustu. Eins og hv. þingmaður dregur hér fram með réttu á það til að mynda við um endurhæfingarþjónustu og ekki síður og kannski fyrst og fremst geðheilbrigðisþjónustu á öllum stigum því að þar erum við ekki með sambærilegt einingakerfi sem einfalt er að yfirfæra á DRG-módelið. Það verður því eftir sem áður þannig að einhver hluti af fjármögnun kerfisins verður með þeim hætti sem nú er.