151. löggjafarþing — 119. fundur,  6. júlí 2021.

sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka.

[13:46]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Salan á 35% hlut ríkisins í Íslandsbanka hefur verið gagnrýnd harðlega. Hæstv. ríkisstjórn hefur með sölunni boðið ríkustu Íslendingunum og erlendum fjárfestingarsjóðum til veislu á kostnað almennings. Hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra ákvað að selja banka á undirverði, banka sem gefið hafði milljarða í ríkissjóð undanfarin ár og styrkt þannig velferðarsamfélagið. Það er arfavitlaus fjármálastjórn að selja banka á undirverði til að greiða niður skuldir á lágum vöxtum. Í eigendastefnu ríkisins segir um sölu banka að gæta þurfi að langtímahagsmunum ríkissjóðs og stuðla eigi að heilbrigðu eignarhaldi til lengri tíma. Er ekki augljóst að hæstv. ráðherra hefur mistekist að laða að bankanum heppilega bakhjarla með áhuga fyrir langtímabankarekstri og þjónustu við íslenska viðskiptavini, sterka bakhjarla sem kunna bankarekstur líkt og lagt er til í hvítbók sem ríkisstjórnin sjálf lét gera sem undanfara sölunnar? Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum, spyr í ágætri grein í Vísbendingu á dögunum hver sé hagur íslenskra viðskiptavina bankanna, lífeyrissjóðanna eða íslenska fjármálamarkaðarins yfir höfuð af því að þjóðarsjóður Abú Dabí eða konungsríki Sádi-Arabíu geti komið hingað til lands og náð 20–25% ávöxtun á einni viku. Getur hæstv. ráðherra svarað því? Og gróðinn er allur á kostnað almennings vegna ákvörðunar hæstv. ráðherra og ríkisstjórnarinnar að selja banka á undirverði.