sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka.
Virðulegi forseti. Þeir keppast nú við að útskýra fyrir okkur að við höfum selt banka á of lágu verði sem sögðu að ekki væri hægt að selja bankann vegna þess að ekki myndi fást nægilega hátt verð. Þetta er fólkið sem allt lagðist gegn því af þeim ástæðum að aðstæður byðu ekki upp á það. En við héldum okkar striki og sýndum fram á að eftirspurnin var næg og hún var mikil og við náðum okkar helstu markmiðum með því að fá hlutabréf í Íslandsbanka skráð.
Ég vil minna á það hér í upphafi að þetta er banki sem við í ríkisstjórn sem ég átti aðild að tókum á sínum tíma af kröfuhöfunum án endurgjalds. Nú vitum við hvers virði eignarhluti ríkisins er sem ekki var seldur. Við höfum beitt markaðnum til þess að fá endanlegt verð á þann hlut og kemur í ljós að við höfum líklega verið að vanmeta þessa eign okkar þrátt fyrir að við höfum núna selt á markaði yfir bókfærðu verði ríkisins.
Ég vek athygli á því að með þeirri sölu sem hefur átt sér stað hefur ríkið einungis selt u.þ.b. 12,5% af eignarhlutum sínum í fjármálafyrirtækjum, en fyrir söluna vorum við langstærsti eigandi að fjármálafyrirtækjum í Evrópu. Þeir eru til sem vilja ekki sjá fjármálafyrirtæki nema í eigu ríkisins, nú eða í eigu lífeyrissjóða. En ég er þeirrar skoðunar að almenn þátttaka fólksins í landinu, í gegnum skráningu, Kauphöllina, sé af hinu góða. Það er alrangt sem hv. þingmaður segir að ekki hafi verið forgangsraðað í þágu þeirra sem mesta fjármuni hafa. Þvert á móti, eina fólkið sem ekki var skert var fólkið sem bauðst að kaupa fyrir 50.000 kr. eða allt upp í 1 milljón af sparnaði sínum (Forseti hringir.) með þessum hætti. Það var því forgangsraðað í þágu þeirra sem minnst höfðu fram að bjóða í þessu útboði, sem fór afskaplega vel, og ríkið stendur (Forseti hringir.) miklu betur á eftir.