151. löggjafarþing — 119. fundur,  6. júlí 2021.

sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka.

[13:50]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Ég hélt að það hlytu að vera töluverð vonbrigði fyrir hæstv. ráðherra að þeir sem gagnrýndu söluáformin og nú söluna hafi í raun haft rétt fyrir sér allan tímann, að hæstv. ráðherrann hefði búist við öðru. En nei, svo er ekki. Hann er hæstánægður. Ekki er furða að þátttaka í útboðinu hafi verið afbragðsgóð, enda verið að gefa hluta af arðbærri eign. Fjárfestar fengu eign almennings að gjöf og það er ekkert annað en bankagjöf að selja hluti bankans á undirverði sem kaupendur seldu svo á rúmlega fullu verði örfáum dögum síðar. Blasir ekki við að nýir eigendur, hverjir sem þeir nú eru eða verða, geri hærri ávöxtunarkröfu (Forseti hringir.) og að viðskiptavinir bankans — sem flestir höfðu ekki ráð á því að taka þátt í útboðinu því það er ekki svo að allur almenningur eigi milljón til að skella á borðið til að kaupa sér hlut á afsláttarverði í banka (Forseti hringir.) — þurfi að greiða fyrir (Forseti hringir.) arðsemiskröfu nýrra eigenda með hærri vöxtum og þjónustugjöldum til bankans?