sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka.
Virðulegi forseti. Það var þarna í síðustu orðunum sem við sáum í vinstri vangann á Samfylkingunni, vangann sem trúir því ekki að fjármálafyrirtæki geti yfir höfuð verið í einkaeigu, þ.e. á almennum markaði, Samfylkingin sem trúir því eingöngu að ríkið eigi að fara með slíka hluti og eigi að beita eignarhlutum sínum í fjármálafyrirtækjum til að gefa fólki góð kjör. Væntanlega að fara í einhvers konar núllrekstur. Það var nákvæmlega þessi hugmyndafræði sem hefði mátt koma fram fyrir söluna. Ekki koma hingað eftir söluna og tala um að verðið hafi ekki verið nógu hátt. Þið eruð ekkert að tala um það. Þið eruð að tala um það að þið viljið einfaldlega ekki að svona hlutir séu markaðssettir, jafnvel þótt þið hafið á sínum tíma setið í ríkisstjórn og boðað 30% sölu á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka. Fólkið sem vill ekki selja banka á bara að segja það hreint út. (Gripið fram í.) Aðferðafræðin sem notuð var í þessu dæmi, þessu máli, sölunni á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka, (Forseti hringir.) var teiknuð upp í ríkisstjórnartíð Samfylkingarinnar. Lögin um Bankasýsluna, aðferðafræðin sem beitt var — nákvæmlega forskrift Samfylkingarinnar úr ríkisstjórn. (LE: Notaðu þá sömu aðferðafræði við að fá rétt markaðsverð …) (Forseti hringir.)
(Forseti (GBr): Forseti biður þingmenn um að hafa ró í þingsalnum og vera ekki að skiptast á skoðunum hornanna á milli.)