151. löggjafarþing — 119. fundur,  6. júlí 2021.

áhrif Covid-19 á biðlista í heilbrigðisþjónustu.

[13:56]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Fyrst og fremst hefur íslenskt heilbrigðiskerfi staðist þetta þolpróf sem Covid-19 er með sóma. Raunar hefur íslenskt samfélag staðist þetta álagspróf með sóma. Það eru ákveðnir mælikvarðar og ákveðnar leiðir til að meta stöðu og styrkleika heilbrigðiskerfa og á slíkum mælikvörðum er íslenskt heilbrigðiskerfi í fremstu röð. Við getum gert enn betur, það er alveg ljóst, en hins vegar er það svo, núna á miðju ári 2021, eftir þessa lotu sem heimsfaraldurinn hefur verið fyrir okkar góða kerfi, fullkomlega eðlilegt að við horfumst í augu við áskoranir. Það er fullkomlega eðlilegt, að hluta til vegna Covid, að hluta til vegna þess að kerfið okkar hefur um langt árabil búið við áskoranir bæði í fjármögnun og mönnun. Starfsfólkið okkar í heilbrigðiskerfinu, sem hefur margt hvert neitað sér um frí, neitað sér um samverustundir með fjölskyldunni, hefur mætt til vinnu til að skima, til að bólusetja, til að hitta sjúklinga, til að standa vaktina, er það starfsfólk í íslensku samfélagi sem verðskuldar mikið þakklæti og mikinn skilning af okkar hálfu. Það er álag á hverjum einasta degi líka hjá þessu starfsfólki sú umræða sem snýst um það að heilbrigðiskerfið sé komið að fótum fram, vegna þess að það er sannarlega lúið eins og allt okkar góða fólk, kerfið okkar er lúið. (Forseti hringir.) En í grunninn búum við vel mannað, sérlega sterkt og öflugt heilbrigðiskerfi sem er að spyrna frá, rétt eins og aðrir þættir samfélagsins.