áhrif Covid-19 á biðlista í heilbrigðisþjónustu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir svörin. Ég get ekki annað en verið sammála henni, heilbrigðisstarfsfólk á sannarlega lof skilið eftir Covid-19. En er mönnunarvandi að stóraukast í heilbrigðiskerfinu? Er það vegna flótta úr kerfinu vegna álags, kulnunar í starfi og þá einnig þess að fáir útskrifast úr námi og vegna Covid-19? Hvaða áhrif hefur það? Við vitum það vantar tíu sérfræðinga á bráðadeild Landspítalans — tíu. Það hlýtur að skapa hættu.
Þá eru Sjúkratryggingar Íslands að semja um endurhæfingarþjónustu vegna Covid-19, en þar eru langir biðlistar og hafa nokkrar stofnanir brugðið á það ráð að fækka meðferðartímum hjá hverjum einstaklingi til að koma fleirum að. Það hlýtur að hringja bjöllum. Og er það ekki áhyggjuefni þegar maður heyrir konu segja, sem á að vera löngu komin í leghálsskimun, að hún segist ekki þora að fara í skimun vegna þess að hún sé hrædd um að sýnið týnist? Hún þorir ekki að fara og hún ætlar ekki að fara fyrr en búið verður að ganga frá því þannig að allt ferlið fari fram hérna heima.