151. löggjafarþing — 119. fundur,  6. júlí 2021.

áhrif Covid-19 á biðlista í heilbrigðisþjónustu.

[14:00]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Það er sérstakt áhyggjuefni sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur bent á, núna þegar þjóðir heims eru að glíma við bólusetningar eftir heimsfaraldur og eru komnar mislangt, sú andlega vanlíðan sem þjakar þjóðir heims. Það er sérstakt áhyggju- og áhersluefni Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar sem biður þjóðir heims að horfa sérstaklega til geðheilbrigðismála og andlegrar líðanar fólks en ekki síst heilbrigðisstarfsfólksins. Þess vegna og ekki síst þess vegna skiptir mjög miklu máli það sem við ræddum hér áðan, ég og hv. þingmaður, að standa með heilbrigðisstarfsfólki í því álagi sem það hefur þurft að ganga í gegnum fyrir okkur öll. Heilbrigðisþjónustan hvílir á þessari mönnun. Þess vegna legg ég áherslu á að leggja við hlustir þegar heilbrigðisstarfsfólk hefur áhyggjur (Forseti hringir.) og taka mark á þeim áhyggjum sem þar koma fram og standa með því starfsfólki þegar það lýsir því yfir að það vilji (Forseti hringir.) þróa kerfið áfram til góðs.