151. löggjafarþing — 119. fundur,  6. júlí 2021.

endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.

[14:01]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M):

Herra forseti. Ég vísa til samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sem gerður var á milli ríkisins og sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, undirritaður í september 2019 fyrir hönd ríkisins af hæstv. fjármálaráðherra. Það sem einkennir þennan höfuðborgarsáttmála um samgöngumál, þar sem vissulega er margt ágætt að finna, er að svokölluð borgarlína er þar einna efst á blaði en Sundabrautin mjög neðarlega, ef hún er þar yfir höfuð að tala. Nú verður varla opnað tölublað af Morgunblaðinu öðruvísi en að sérfræðingar fjalli þar um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu. Ég vísa sérstaklega til áhugahópsins Áhugafólk um samgöngur fyrir alla, sem hafa kynnt útgáfu sem þau kalla létta borgarlínu og meta að muni kosta 20 milljarða borið saman við áætlaða 100 milljarða fyrir þá borgarlínuhugmynd sem nú er unnið með, m.a. á vettvangi hins opinbera hlutafélags sem við ræddum hvað lengst hérna á sínum tíma. Síðan hefur komið fram umferðarspá þar sem fram kemur að þrátt fyrir að borgarlínan verði líklega gerð, það er líklega rétta orðið, muni almenningssamgöngur ekki aukast nema um kannski 1% fram til 2034, eins og fram kemur í grein eftir talsmann áhugahópsins, Þórarin Hjaltason samgönguverkfræðing.

Af þessu tilefni spyr ég hæstv. ráðherra hvort hann geti tekið undir með mér um að það sé fullt tilefni — 80 milljarðar eru mjög mikið fé, við hæstv. ráðherra myndum ekki deila um það — til að endurskoða fyrrgreindan höfuðborgarsáttmála með það fyrir augum að taka upp ódýrari útgáfu af borgarlínunni og nota sparnaðinn til að setja Sundabraut, sem er náttúrlega þjóðnýt framkvæmd eins og allir vita, á oddinn.