151. löggjafarþing — 119. fundur,  6. júlí 2021.

einkavæðing ríkisbankanna.

[14:09]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Það er mikil eftirspurn eftir umbyltingu fjármálakerfisins. Slík umbylting mætti t.d. felast í því að færa hluta bankastarfsemi yfir á samfélagsbankastig þar sem bankar gætu jafnframt starfað með græn sjónarmið og loftslagsmarkmið að leiðarljósi umfram hina strípuðu arðsemiskröfu. Þetta er eitthvað sem hæstv. forsætisráðherra hefur sjálf lengi talað fyrir. Ég óttast að þessa dagana séum við að missa ákveðið tækifæri til slíkra breytinga vegna þess að verið er að einkavæða Íslandsbanka í óþökk þjóðarinnar. Meðan ríkið átti tvo banka hefði verið svo borðleggjandi að beita sér fyrir betra bankakerfi í gegnum eignarhlut ríkisins. Hæstv. ráðherra hefur látið hafa eftir sér að ákvarðanir um frekari bankasölu bíði næstu ríkisstjórnar. Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra og formann Vinstri grænna hvort flokkurinn sé einhuga í þeim málum. Munu Vinstri græn, ef þau komast í næstu ríkisstjórn, standa að því að Íslandsbanki verði seldur að fullu?

Þá er rétt að nefna að hæstv. fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins hefur sagst vilja ganga lengra og selja stóran hlut í Landsbankanum á næsta kjörtímabili. Þegar á hólminn er komið og Vinstri græn fara aftur í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum, hver fær að ráða? Geta kjósendur treyst því að Vinstri græn muni ekki standa að ríkisstjórn sem stefni á að einkavæða Landsbankann? Eða verður það kannski bara eins og þegar við treystum því að VG myndi ekki stökkva í stjórn með Sjálfstæðisflokknum fyrir kosningarnar 2017?