einkavæðing ríkisbankanna.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina, en nú var hann á sama landsfundi og ég árið 2017 sem samþykkti stefnu VG, þannig að hv. þingmaður veit það alveg jafn vel og ég hver stefna VG er í þessum málum og við hana hefur verið staðið á þessu kjörtímabili. Stefna VG er að ríkið eigi Landsbankann. Sú stefna hefur ekki breyst. Það hefur ekki verið tekin ákvörðun um að eiga fleiri banka. Íslandsbanki kom upp í fang ríkisins, eins og hv. þingmaður veit líka ósköp vel, með tilteknum hætti í tengslum við stöðugleikasamninga. Og VG hefur aldrei haft þá stefnu að ríkið eigi að eiga allt bankakerfið. Það veit hv. þingmaður líka jafn vel og ég af því að hann var á sama landsfundi þar sem síðasta ályktun var samþykkt um þetta, um að ríkið skyldi eiga Landsbankann. Við þá stefnu mun VG standa, eins og það hefur staðið við hana á þessu kjörtímabili.
Ég veit ekki hvað hv. þingmaður sagði fyrir síðustu kosningar en ég veit hvað ég sagði sem formaður hreyfingarinnar. Það var að Vinstrihreyfingin – grænt framboð myndi vinna með þeim sem væru reiðubúnir að vinna með henni að málum sem væru til framfara fyrir íslenskt samfélag. Þar forgangsröðuðum við heilbrigðismálum og loftslagsmálum og í þeim málaflokkum hefur náðst ótvíræður árangur á þessu kjörtímabili, enda er ég þeirrar skoðunar að það skipti máli fyrir stjórnmálamenn að ná árangri, ekki bara tala. Þannig að ég er mjög ánægð með árangur VG á þessu kjörtímabili og ég mun leggja á það áherslu að VG leiði áfram ríkisstjórn og haldi áfram að ná árangri fyrir íslenskt samfélag. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)