einkavæðing ríkisbankanna.
Herra forseti. Stefna Vinstri grænna kann að vera að ekki eigi að selja Landsbankann. En við áttum t.d. orðastað, ég og hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir, hér við lok vorþings þar sem hún þrástagaðist á því að stefna Vinstri grænna væri að banna olíuleit en gat ekki treyst sér til að leggja fram nefndarálit þess efnis. Þannig að eftir stendur spurningin: Mun hæstv. forsætisráðherra, ef Vinstri græn komast í ríkisstjórn eftir kosningar, standa gegn hugmyndum fjármálaráðherra um að einkavæða Landsbankann? Í ljósi þess að kannanir síðustu misserin hafa allar sýnt fram á andstöðu við meiri hluta þjóðarinnar við bankasölu, telur ráðherrann að andstaða þjóðarinnar sé einfaldlega vegna þess að hún sé illa upplýst?