einkavæðing ríkisbankanna.
Herra forseti. Ég svaraði þessari spurningu mjög skýrt í fyrra sinnið og það er að Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur staðið við sína stefnu á þessu kjörtímabili og m.a. þess vegna var stjórnarsáttmáli samþykktur með yfirgnæfandi meiri hluta í flokksráði Vinstri grænna, þó að hv. þingmaður hafi ekki samþykkt hann og átt mjög erfitt með að styðja þessa ríkisstjórn, enda er hann farinn. En við í VG höfum staðið við okkar stefnu og höldum því bara áfram.
Hv. þingmaður spyr um afstöðu almennings. Ég vil benda hv. þingmanni á að þessi sala, sem boðuð var í stjórnarsáttmála, var rædd á Alþingi. Það var óskað eftir áliti efnahags- og viðskiptanefndar um málið og fyrir liggja álitsgerðir hennar um hvaða sjónarmið eigi að hafa að leiðarljósi við söluna. Þar var sérstök áhersla lögð á dreift eignarhald og gagnsæi og að farin yrði sú leið sem farin er. Sömuleiðis var í raun og veru bæði stuðlað að dreifðu eignarhaldi og fjölbreytileika og það var líka lagt upp úr því að (Forseti hringir.) þeir sem byðu lægri fjárhæðir yrðu ekki skertir.
Ég vil segja, af því að hv. þingmaður spyr um traust: Þessi sala var framkvæmd í samræmi við vilja meiri hluta Alþingis og (Forseti hringir.) upp úr því var lagt að fylgja þeirri leiðbeiningu og tryggja dreifða eignaraðild, gagnsæi og skýr og vönduð vinnubrögð. (Forseti hringir.) Ég vonast til þess að það verði til að auka traust.