151. löggjafarþing — 119. fundur, 6. júlí 2021.
frestun á fundum Alþingis.
873. mál
Herra forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Tillagan er svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 6. júlí 2021 eða síðar, ef nauðsyn krefur.“
Tillagan skýrir sig sjálf.