frestun á fundum Alþingis.
Forseti. Ég mæli fyrir breytingartillögu við tillögu forsætisráðherra um þingfrestun. Legg ég til að við tillögugreinina bætist: enda verði þing kvatt saman að nýju eigi síðar en 12. ágúst 2021 til sérstaks fundar um stjórnarskrármál.
Þessa tillögu flytja auk mín hv. þingmenn Guðmundur Andri Thorsson og Inga Sæland.
Forseti. Óþarfi er að fara mörgum orðum um þá snautlegu niðurstöðu sem kom út úr vinnu við breytingar á stjórnarskrá undir forystu hæstv. forsætisráðherra á kjörtímabilinu. Svo rýrar voru heimturnar að stjórnarliðar ákváðu á síðustu dögum vorþings að svæfa málið í nefnd. Sá þingstubbur sem hér er mælt fyrir snýst ekki um að lögfesta í heild sinni þá nýju stjórnarskrá sem við eigum til, stjórnarskrá sem byggir á tillögum stjórnlagaráðs, því miður. Þingstubburinn snýst heldur ekki um að tjasla upp á stjórnarskrárfrumvarp Katrínar Jakobsdóttur og koma því yfir endamarkið, kannski sem betur fer. Nei, þessi þingstubbur snýst bara um eitt afmarkað og lítið atriði, eitthvað sem mætti kalla þrautalendingu, að þingið mæli fyrir um nýtt breytingarákvæði á gildandi stjórnarskrá sem myndi undirstrika vald þjóðarinnar sem stjórnarskrárgjafa.
Breytingartillaga þess efnis liggur þegar fyrir á þskj. 844 og var lögð var fram af fulltrúum Pírata, Flokks fólksins og Samfylkingarinnar við 1. umr. stjórnarskrárfrumvarps Katrínar Jakobsdóttur. Sú tillaga gerir mögulegt að breyta stjórnarskránni án þingrofs með þeim hætti að þegar Alþingi hefur samþykkt frumvarp til breytingar á stjórnarskrá sé það borið undir þjóðaratkvæði til samþykktar eða synjunar. Hæstv. forsætisráðherra hefur sjálf sagt að núverandi fyrirkomulag sé óheppilegt. Að blanda saman þinglokum, blóðugum prófkjörum og stjórnarskránni er kokteill sem slær ekki á taugar þingmanna. Með því að gefa þjóðinni lokaorðið komumst við þannig hjá því að þingstörfin fari á hliðina rétt fyrir þinglok og að pólitísk framtíð einstakra þingmanna ráðist af stuðningi eða stórkarlalegri andstöðu þeirra við stjórnarskrárbreytingar sem ættu með réttu að vera í höndum hins raunverulega stjórnarskrárgjafa, þjóðarinnar.
Ég mæli því fyrir því að frestunartillaga á fundum Alþingis þetta árið verði með þeim hætti að þingið komi saman á nýjan leik til sérstaks fundar 12. ágúst og reyni að gera eitthvað gott úr þessari vonlausu stöðu.