151. löggjafarþing — 119. fundur,  6. júlí 2021.

frestun á fundum Alþingis.

873. mál
[14:22]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Gert var ráð fyrir haustkosningum út af þingstubbi um stjórnarskrá. Ef atkvæðagreiðsla fer á þann hátt að þessari breytingartillögu verður hafnað þá er mjög skrýtið að halda áfram þessu kjörtímabili. Það er einfaldlega verið að taka fjóra mánuði af undirbúningstíma næsta kjörtímabils, næstu ríkisstjórnar, til að klára þingmálið sem er lagt fram á fyrsta þingi nýs kjörtímabils, fjárlög. Það er verið að taka þann undirbúningstíma af næsta kjörtímabili. Ef þingmönnum hugnast ekki að hafa þingstubb á þessu kjörtímabili fyrir kosningar þá legg ég til að ríkisstjórnin hætti þessu og hleypi næsta kjörtímabili að sem fyrst. Atkvæði þingmanna um þessa breytingartillögu skipta máli, hvort það verði stutt þing um breytingar á stjórnarskrá eða ekki. Atkvæði þingmanna í þessu máli munu segja sögu ríkisstjórnarinnar um stjórnarskrármál þessa kjörtímabils.