151. löggjafarþing — 119. fundur,  6. júlí 2021.

frestun á fundum Alþingis.

873. mál
[14:23]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Fulltrúi Samfylkingarinnar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd er meðflutningsmaður á þessari breytingartillögu. Við í Samfylkingunni styðjum hana, enda teljum við mjög mikilvægt að við ljúkum ekki þessu kjörtímabili án þess að ræða um stjórnarskrármál, einkum og sér í lagi að taka afstöðu til breytingarákvæðis varðandi stjórnarskrána. Þess vegna styðjum við þessa tillögu og hvetjum aðra þingmenn til að gera slíkt hið sama.