frestun á fundum Alþingis.
Virðulegi forseti. Frá upphafi þessa kjörtímabils hefur Alþingi og fulltrúar héðan starfað við það að reyna að breyta stjórnarskránni með verklagi sem hæstv. forsætisráðherra lagði til í upphafi kjörtímabilsins. Á þeim tíma var sagt við okkur Pírata, og eflaust fleiri, að verið væri að draga okkur á asnaeyrunum. Það væri verið að fíflast í okkur með því að taka þátt í þessu starfi. Við ákváðum að taka þátt í því starfi af heilindum vegna þess að við trúðum því að það ætti að nýta öll tækifæri til að ná einhverjum árangri í þessum málum. Við stóðum við okkar af heilindum. Þegar ekkert kom út úr þeirri sameiginlegu vinnu þá lagði hæstv. forsætisráðherra fram sitt eigið frumvarp. Við stóðum ekki í vegi fyrir því. Það fór í nefnd og við stóðum meðal annarra að nefndaráliti til að afgreiða það úr nefnd, en það mátti ekki gera. Við vildum fá haustþing til að ræða stjórnarskrármál, en það mátti ekki gera. Og nú er það þessi tillaga og skal hún felld af meiri hlutanum.
Virðulegi forseti. Ég legg til við kjósendur að þeir kjósi næst einhverja flokka sem treysta sér í verkið. Að lokum legg ég til að fundir fastanefnda Alþingis verði að jafnaði opnir.