þingfrestun.
Forseti Íslands gjörir kunnugt:
„Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 151. löggjafarþings, frá 6. júlí 2021 eða síðar, ef nauðsyn krefur.
Gjört á Bessastöðum, 6. júlí 2021.
Guðni Th. Jóhannesson.
________________
Katrín Jakobsdóttir.
Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“
Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég því yfir að fundum Alþingis, 151. löggjafarþings, er frestað.
Ég vil nota tækifærið og þakka alþingismönnum og starfsfólki þingsins kærlega fyrir að bregðast skjótt við eftir að þessir annmarkar komu í ljós á löggjöf um listabókstaf stjórnmálasamtaka því það er okkur öllum mikilvægt að enginn vafi leiki á því að framkvæmd kosninga sé hafin yfir allan vafa. Ég tel að við höfum tryggt það með störfum okkar í dag.
Fyrir liggur að kosningar til Alþingis fara fram 25. september næstkomandi. Hyggst ég leita atbeina forseta Íslands, eins og ég sagði nú hér fyrir skömmu, til að rjúfa þing, sem kunngert verður í fyrsta lagi 12. ágúst næstkomandi með forsetabréfi.