152. löggjafarþing — -1. fundur,  23. nóv. 2021.

forseti Íslands setur þingið.

[14:04]
Horfa

Forseti Íslands (Guðni Th. Jóhannesson):

Hinn 18. nóvember síðastliðinn var gefið út svofellt bréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til fundar þriðjudaginn 23. nóvember 2021.

Um leið og ég birti þetta, er öllum, sem setu eiga á Alþingi, boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur, og verður þá Alþingi sett að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni er hefst kl. 13.30.

Gjört á Bessastöðum, 18. nóvember 2021.

Guðni Th. Jóhannesson.

_________________

Katrín Jakobsdóttir.

 

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman þriðjudaginn 23. nóvember 2021.“

Samkvæmt bréfi því sem ég hef nú lesið lýsi ég yfir að Alþingi Íslendinga er sett.

Háttvirtu alþingismenn. Ég býð ykkur öll sem hér sitjið velkomin til þings. Nýtt kjörtímabil er hafið, kosið var fyrir nær tveimur mánuðum. Eftirmál urðu í einu kjördæmi og samkvæmt stjórnarskrá okkar er það í höndum Alþingis að skera úr um hvort þingmenn þess séu löglega kosnir. Mikil er því ábyrgð alþingismanna, nú sem endranær.

Enn setur heimsfaraldurinn svip sinn á samfélagið og þingstörfin þar með talin. Sem fyrr sýnist sitt hverjum um sóttvarnir. Vissulega hefur hin eina rétta leið ekki alltaf verið valin, skárra væri það nú, enda oft úr vöndu að ráða og auðvelt að vera vitur eftir á. Þá gerist það gjarnan í vandasömum málum að einn saki annan um að vaða í villu og svíma, nenna ekki að kynna sér neitt og hlýða bara yfirvöldum í blindni og ótta — nú eða á hinn bóginn að sá eða sú sem í hlut eigi trúi aðeins á samsæriskenningar, hugsi um eigin hag en ekki heildarinnar og geri lítið úr augljósri ógn.

Öfgar og ýkjur geta fylgt frjálsum skoðanaskiptum en við höfum borið gæfu til þess, íbúar þessa lands, að standa að mestu saman andspænis sameiginlegri vá. Sú eining hefur byggst á almennri skynsemi, almennri umræðu, almennri þekkingu og almennu trausti.

Í leit að rökum hafa mörg okkar eflaust sótt í sjóð reynslu og sögu. Við sem höfum notið þess að eignast börn munum flest eftir bólusetningum sem verja þau og annað fólk gegn skæðum sóttum. Við munum jafnvel líka að fengju þau hlaupabólu eða magakveisu þótti sjálfsögð skylda að halda þeim um skeið í sóttkví, fjarri leikskóla eða dagvistun. Frelsi til að sýkja aðra er rangsnúinn réttur.

Lærdóm má einnig draga af löngu liðinni tíð. Árið 1846, ári eftir að endurreist Alþingi kom fyrst saman, geisaði mislingafaraldur um land allt. Íslendingum fækkaði um tvo af hundraði og getur fólk reiknað í huganum hver slík tala væri um okkar daga. Hún er engu lík í mannkynssögunni, umbylting síðustu mannsaldra á sviði lyfja og lækninga, umbylting lífskjara og aðbúnaðar.

Þær framfarir byggðust á gagnrýninni hugsun, víðsýni og þekkingarleit, stöðugum breytingum. Ef við hlýddum enn ráðum færustu sérfræðinga fyrri alda myndum við reyna að lækna mein með því að taka fólki blóð þótt sú kórvilla hafi einatt gert illt verra. Í þeim faraldri sem enn geisar hljóta varnir að taka mið af því sem lærist og mati á því hvaða áhrif þær hafa á samfélagið allt.

Þannig virka sönn vísindi og vísindin efla alla dáð. Þá þekktu speki finnum við í óði Jónasar Hallgrímssonar til hins franska herra Pauls Gaimards. Kvæðið orti hann nokkrum árum fyrir endurreisn Alþingis. Listaskáldið góða harmaði auðvitað hnignun Þingvalla. Þau vísuorð hans eru ekki eins kunn en mega líka lifa:

nú er þar þrotin þyrping tjalda,

þögult og dapurt hraunið kalda

— þótti þér ekki Ísland þá

alþingi svipt með hrellda brá?

„Alþingi svipt með hrellda brá.“ Þrjú skipti í röð höfum við gengið til þingkosninga að hausti. Það kjörtímabil sem nú er hafið getur staðið til seinni hluta september að fjórum árum liðnum. Ræða þarf kosti þess og galla að hafa kjördag að hausti en ekki að vori eins og venja hefur verið, ekki síst hvaða áhrif það hefur á störf Alþingis, þungamiðju hins pólitíska valds.

Ágætu þingmenn. Margt brennur meira á íslenskri þjóð en endurskoðun stjórnarskrárinnar. Að lokum leyfi ég mér þó að nefna að við þingsetningu fyrir tæpu ári lýsti ég þeirri von að unnt yrði að taka hófsamar tillögur að breytingum á stjórnarskrá til efnislegrar afgreiðslu og leiða umræður til lykta í þessum sal. Svo fór ekki. Þess í stað réðust örlög stjórnarskrárfrumvarps í einhverju nefndarherbergi hér handan Austurvallar.

Vonandi gengur betur á þessu kjörtímabili að ræða og ráðast í skynsamlegar umbætur á stjórnarskrá Íslands, rétt eins og henni hefur áður verið breytt í tímans straumi. Má þá sem fyrr horfa til ákvæða um umhverfi, auðlindir og íslenska tungu, auk breytinga á þjóðhöfðingjakafla stjórnarskrárinnar. Verkefni hér næstu daga benda líka til þess að í fleira megi rýna í þessum efnum.

Á netinu má lesa þá skilgreiningu á fávisku að endurtaka sömu aðgerðina en búast samt við annarri niðurstöðu og betri. Þetta er gjarnan haft eftir Albert Einstein en það er víst úr lausu lofti gripið, enn einn vitnisburður um það að ekki beri að trúa öllu á þeim vettvangi. Hinu treysti ég miklu frekar sem Svava Jakobsdóttir segir í Gunnlaðar sögu, að milli nýs og gamals er allt óskapað. Framtíðin er til þess að móta hana.

Ég óska þingmönnum og starfsliði Alþingis farsældar í störfum sínum og landsmönnum alls velfarnaðar. Ég bið þingheim að rísa úr sætum og minnast ættjarðarinnar.

[Þingmenn risu úr sætum og forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.]

Samkvæmt 1. gr. þingskapa ber nú þeim þingmanni sem lengsta fasta þingsetu hefur að baki að stjórna fundi þangað til forseti Alþingis hefur verið kosinn. Bið ég hv. 5. þm. Suðvest., Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, að ganga til forsetastóls.

[Söngkonur úr Domus vox fluttu Hættu að gráta hringaná. Íslenskt þjóðlag, ljóð Jónasar Hallgrímssonar.]