152. löggjafarþing — -1. fundur,  23. nóv. 2021.

ávarp aldursforseta.

[14:15]
Horfa

Aldursforseti (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir):

Ég býð alla hv. alþingismenn sem kjörnir voru í alþingiskosningunum 25. september 2021 velkomna til starfa á Alþingi.

Alþingi er kjölfesta lýðræðisins. Það getur aðeins með störfum sínum gegnt því mikilvæga stjórnskipulega hlutverki. Þess vegna er ástæða til að fagna setningu Alþingis í dag eftir langt fundarhlé. Ég vil láta í ljósi þá von að störf þessa nýkjörna þings verði landi og þjóð okkar til heilla.

Fyrir hönd alþingismanna heilsa ég starfsfólki Alþingis og vænti þess að við megum eiga gott samstarf við það eins og endranær.