rannsókn kjörbréfa.
Hæstv. forseti. Samkvæmt 46. gr. stjórnarskrárinnar sker Alþingi sjálft úr um hvort þingmenn þess séu löglega kosnir. Um vinnubrögð við það er fjallað í þingsköpum og eins í ákveðnum ákvæðum kosningalaga, laga um kosningar til Alþingis frá árinu 2000. Kjörbréfanefnd hefur nú starfað frá því að hún var kjörin á þriðjudaginn en í samræmi við ákvæði þingskapa hefur undanfarna tvo mánuði tæpa starfað svonefnd undirbúningsnefnd sem hefur undirbúið störf kjörbréfanefndar og skilaði nú á þriðjudag til kjörbréfanefndar ítarlegri greinargerð um störf sín og niðurstöður sem birt var á vef Alþingis og hefur verið þingmönnum aðgengileg. Á fyrri stigum hafa margvísleg gögn undirbúningsnefndar verið birt á vefnum og þingmenn haft tækifæri til að kynna sér þau svo til jafnóðum og er fjöldi þeirra skjala orðinn verulegur. Þar er um að ræða kosningakærur, minnisblöð, ýmsar skýrslur frá landskjörstjórn, yfirkjörstjórnum og öðrum aðilum, sem þingmenn geta byggt mat sitt í dag á.
Í nefndaráliti, sem undirritað er af þeim sem hér stendur, Diljá Mist Einarsdóttur, Ingu Sæland, Jóhanni Friðriki Friðrikssyni, Líneik Önnu Sævarsdóttur og Vilhjálmi Árnasyni, er fjallað um mismunandi þætti í störfum kjörbréfanefndarinnar og niðurstöður hennar. Þar er samkvæmt venju fyrst gerð grein fyrir afgreiðslu ágreiningsatkvæða sem berast kjörbréfanefnd vegna bókana eða ágreinings sem upp hefur komið í kjörstjórnum. Án þess að fara ítarlega yfir það þá er þetta það sem við getum kallað hefðbundið verkefni kjörbréfanefndar og það var ekki ágreiningur í nefndinni um þá niðurstöðu að úrskurða með þeim hætti sem getið er um í þingskjalinu. Rétt er að geta þess að nefndarmenn hafa gengið úr skugga um að þær tillögur um mat á ágreiningsatkvæðum hafa ekki áhrif á úrslit alþingiskosninganna sem fram fóru 25. september.
Í II. kafla nefndarálitsins er fjallað um úthlutun þingsæta, bókanir umboðsmanna og aðrar aðfinnslur og vísast þar fyrst og fremst til greinargerðar undirbúningsnefndarinnar sem hefur haft þetta til meðferðar. Við stöldrum ekki við mörg ágreiningsatriði í því sérstaklega í nefndarálitinu. Það má fyrst og fremst geta þess að við höfum verið að fjalla um ágreiningsatriði með þeim hætti að við höfum aðgreint það eftir þeim bókunum sem fram komu í gögnum kjörstjórna og eins á grundvelli allmargra kæra sem borist hafa Alþingi og síðan líka á grundvelli ábendinga sem tengjast þessum kærum. Til að gera langa sögu stutta er rétt að segja, eins og kemur fram í nefndarálitinu, að í ljósi fjölda kosningakæra sem borist hafa Alþingi og ábendinga tengdra þeim hefur verið gengið lengra en áður í að afla upplýsinga og skýringa frá yfirkjörstjórnum og dómsmálaráðuneyti og með öðrum hætti að reyna að varpa ljósi á þau álitamál sem þarna er um að ræða.
Við stöldruðum auðvitað, í sambandi við kærumálin, við ýmis atriði. Í nefndarálitinu, í kaflanum um kosningakærur, er rakið hvaða kærur bárust og frá hverjum og vísast að stórum hluta til ítarlegrar málsatvikalýsingar í greinargerð undirbúningsnefndarinnar um það efni. Þannig að ég hlaupi nú enn nokkuð hratt yfir sögu þá segir í áliti okkar:
Um þau kæruefni í framkomnum kærum sem ekki varða framkvæmd kosninga í Norðvesturkjördæmi vísast til undirkafla 3.1–3.7 í kafla III í greinargerð undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa. Eins og ráðið verður af undirköflunum verður ekki séð að efni þeirra geti leitt til þess að ógilda beri kosningarnar, samanber 118. og 120. gr. laga um kosningar til Alþingis.
Það sem hefur einkum verið undir í starfi undirbúningsnefndar og þar af leiðandi líka kjörbréfanefndar er framkvæmd kosninga í Norðvesturkjördæmi. Kærendur voru margir og athugasemdir sem nefndinni bárust snerust um framkvæmd þar og hefur mestum tíma undirbúningsnefndarinnar verið varið í að fara yfir þá þætti með ítarlegum og greinargóðum hætti og það er auðvitað líka meginefni þessa nefndarálits, enda eru flest þau álitamál sem við þurfum að taka afstöðu til í dag tengd þeirri framkvæmd. Við segjum í nefndarálitinu, varðandi framkvæmd kosninga í Norðvesturkjördæmi, með leyfi forseta:
Um þau kæruefni sem varða framkvæmd kosninga í Norðvesturkjördæmi, málsástæður og lagarök vísast til undirkafla 2.3 í kafla III í greinargerð undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa.“ — Og við vísum líka til kafla 2.5.8 varðandi mat á áhrifum annmarka á kosningum í kjördæminu.
Við sem undir þetta nefndarálit ritum tökum undir þá ályktun undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa að ekki verði séð að þeir annmarkar sem lúta að viðbrögðum yfirkjörstjórnar í aðdraganda endurtalningar, færslu gerðabókar og viðveru umboðsmanna, samanber tiltekna liði í kaflanum, geti haft áhrif á úrslit kosninganna.
Þeim annmarka sem lýtur að vörslu kjörgagna á meðan yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis gerði hlé á fundi sínum sunnudaginn 26. september kl. 7.35 og þar til hún kom aftur saman um kl. 13.00 er vandlega lýst í greinargerð undirbúningsnefndarinnar og vísast til þess. Þann annmarka verður að telja alvarlegastan af þeim annmörkum sem voru á framkvæmd kosninganna. Í a-lið undirkafla 2.5.8 eru rakin mismunandi sjónarmið um hvernig meta beri áhrif þess annmarka. Kemur þar fram að það komi í hlut kjörbréfanefndar að leggja fram tillögur um afgreiðslu kjörbréfa byggðar á því mati.
Fyrir liggur — og held ég áfram að vísa til nefndarálitsins — sú bókun landskjörstjórnar frá fundi hennar 1. október 2021 með umboðsmönnum stjórnmálasamtaka að ekki hafi „borist staðfesting frá yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis á að meðferð og varðveisla kjörgagna á talningarstað í kjördæminu hafi verið fullnægjandi“. Hefur landskjörstjórn með þessum hætti vakið athygli Alþingis á að vafi kunni að vera á því að kjörgögn hafi verið varin með þeim hætti að treysta megi að þau endurspegli vilja kjósenda við alþingiskosningarnar 25. september 2021. Leggur landskjörstjórn áherslu á að í samræmi við 46. gr. stjórnarskrárinnar er það hlutverk Alþingis að úrskurða um hvort til staðar kunni að vera þeir gallar á framkvæmd kosninga sem ætla megi að hafi haft áhrif á úrslit þeirra, samanber einnig 3. mgr. 120. gr. laga um kosningar til Alþingis.
Greinargerð undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa endurspeglar þá umfangsmiklu vinnu sem m.a. hefur farið fram af hálfu nefndarinnar. Í vinnunni var lögð áhersla á að upplýsa um málsatvik, með viðamikilli gagnaöflun og samtölum í þeim tilgangi að varpa ljósi á meðferð og vörslu kjörgagnanna. Að auki fór undirbúningsnefndin yfir kjörgögn í Norðvesturkjördæmi með vönduðum hætti. Í því sambandi benda undirrituð á að yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis hefur veitt greiðan aðgang að þeim gögnum og upplýsingum sem undirbúningsnefndin óskaði eftir auk þess sem fulltrúar yfirkjörstjórnar komu á fundi nefndarinnar, svöruðu skriflegum fyrirspurnum og brugðust við málsatvikalýsingum þegar kostur var gefinn á því.
Þá liggur fyrir að á meðan yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis gerði hlé á fundi sínum sunnudaginn 26. september 2021 voru kjörgögn geymd í opnum kössum í rými sem ekki var læst að öllu leyti eða innsiglað og öryggismyndavélar náðu ekki til. Jafnframt liggur fyrir að fjórir starfsmenn Hótels Borgarness höfðu aðgang að því svæði þar sem kjörgögnin voru geymd. Hafa þeir gert grein fyrir ferðum sínum og ástæðum þeirra. Af málsatvikalýsingu greinargerðarinnar er ljóst að umferð starfsfólks hótelsins var einna helst í fremri sal þar sem það vann við frágang. Þegar starfsfólkið hverfur í stutta stund úr mynd kemur til álita að það hafi farið inn í talningarsalinn eða staðið við inngang í talningarsalinn. Af gögnum málsins má ráða að einungis tveir starfsmenn af fjórum hafi farið inn í talningarsal í þeim tilgangi að sinna störfum sínum, sem voru að gæta að læsingu bakdyra í talningarsal og til að taka saman óhreint leirtau. Jafnframt hafi starfsmenn staðið við inngang talningarsalarins og tekið myndir af talningarsalnum. Þá kemur til álita að bakdyr í talningarsal hafi verið læstar kl. 7.14 eða kl. 8.15 en ekki er ljóst hvenær þeim var læst. Loks liggur fyrir að þegar oddviti yfirkjörstjórnar mætti á talningarsvæðið kl. 11.59 var hann þar einn úr yfirkjörstjórn þar til næsti kjörstjórnarmaður kom kl. 12.35 en samkvæmt upplýsingum lögreglu var starfsfólk hótelsins á sama tíma á ferðinni inn og út úr fremri sal.
Sé þetta allt virt verður að telja að alvarlegur annmarki hafi verið á vörslu kjörgagnanna sem meta þarf hvort ætla megi að hafi haft áhrif á úrslit kosninganna í skilningi 3. mgr. 120. gr. laga um kosningar til Alþingis. Er þá haft í huga að við seinni talningu atkvæða urðu umtalsverðar breytingar á atkvæðatölum framboða, sem áhrif höfðu á úthlutun jöfnunarsæta í kjördæminu og á landsvísu. Þannig fjölgaði til að mynda heildaratkvæðum um tvö, auðum seðlum fækkaði um 12 og ógildum seðlum fjölgaði um 11. Þá fækkaði atkvæðum C-lista um níu og atkvæðum D-lista fjölgaði um 10, en þar af voru átta atkvæði í atkvæðabunka C-lista og tvö önnur atkvæði sem höfðu mislagst í aðra bunka. Aðrar breytingar á atkvæðatölum framboðslista, t.d. um fjölgun atkvæða um fimm hjá B-lista og um fækkun um fimm hjá M-lista, hafa af hálfu yfirkjörstjórnar verið skýrðar svo að „eitt og eitt atkvæði hafi mislagst í atkvæðabunkum“. Hefur kjörstjórnin útskýrt breytingarnar svo að um „mannleg mistök“ hafi verið að ræða.
Í 3. mgr. 120. gr. laga um kosningar til Alþingis kemur fram að „ef þeir gallar eru á framboði eða kosningu þingmanns sem ætla má að hafi haft áhrif á úrslit kosningarinnar úrskurðar Alþingi kosninguna hans ógilda“. Er það í samræmi við þá grundvallarreglu að kjósendur eiga að geta treyst því að úrslit kosninga standi og að lýðræðislegur vilji þeirra sé virtur. Af ákvæðinu verður ráðin sú meginregla að ekki beri að úrskurða kosningu þingmanns ógilda nema ætla megi að annmarkinn hafi haft áhrif á úrslit kosninganna, þ.e. að beita skuli sérstökum mælikvarða. Beiting almenns mælikvarða við slíkar aðstæður kemur því einungis til álita að annmarkinn sé til þess fallinn að hafa áhrif á úrslit kosninga.
Að mati þeirra sex nefndarmanna sem undir þetta álit rita er sá annmarki sem lýtur að vörslu kjörgagna ekki slíkur að við úrlausn málsins skuli beitt almennum mælikvarða. Er þá litið til þess að á Alþingi hvílir skylda til að rannsaka framkomnar kærur og kjörbréf hvers nýkjörins þingmanns, samanber 1. mgr. 120. gr. laga um kosningar til Alþingis og 1. og 5. gr. laga um þingsköp Alþingis. Álitaefnið er því hvort hægt sé að líta svo á að þrátt fyrir að kjörgögn hafi verið óvarin um stund lýsi þau eigi að síður vilja kjósenda við alþingiskosningarnar 25. september 2021. Verður þá með hliðsjón af atvikum málsins einkum að líta til eftirfarandi atriða sem þessi hluti nefndarinnar hefur skoðað sérstaklega og lagt mat á.
Í fyrsta lagi ber að líta til þess að af upptökum úr eftirlitsmyndavélum má sjá að umferð fólks um fremri sal og talningarsal á tímabilinu 7.35 til kl. 12.35 er takmörkuð við fjóra starfsmenn Hótels Borgarness og oddvita yfirkjörstjórnar sem hafa gert grein fyrir ferðum sínum og ástæðum þeirra. Þá bera upptökur úr eftirlitsmyndavélum með sér að frá því að oddviti mætir á talningarsvæðið kl. 11.59 hafi annað starfsfólk hótelsins einnig verið þar til að sinna störfum sínum. Þá tók starfsmaður hótelsins aðaldyrnar að salnum úr lás um leið og oddviti kjörstjórnar mætti á staðinn. Af staðsetningu eftirlitsmyndavéla er enn fremur ljóst að ekki hafi aðrir en framangreint starfsfólk hótelsins og oddviti farið um dyr sem liggja að talningarsvæðinu á umræddu tímabili. Þá liggur fyrir að starfsfólk hótelsins tók ljósmyndir af óvörðum kjörgögnum meðan á fundarfrestun yfirkjörstjórnar stóð.
Í öðru lagi hefur oddviti sagt svo frá að hann hafi á tímabilinu kl. 11.59 til kl. 12.35 ekki átt við kjörgögnin. Hann hafi farið í talningarsalinn til þess að taka til og undirbúa störf kjörstjórnarinnar þegar hún kæmi aftur til starfa. Fundur yfirkjörstjórnar átti að hefjast á ný kl. 13.00 en aðrir fulltrúar kjörstjórnarinnar dvöldu á hótelinu á meðan fundinum var frestað. Fyrir liggur, samkvæmt gögnum um símtöl oddvita sem hann afhenti að beiðni undirbúningsnefndarinnar, að kl. 12.32 átti landskjörstjórn símtal við oddvita, þar sem bent var á að tveimur atkvæðum munaði á atkvæðahlutfalli C-lista Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi og Suðurkjördæmi, samkvæmt uppgefnum tölum til fjölmiðla. Þá liggur jafnframt fyrir að kl. 12.38 átti oddviti samtal við landskjörstjórn þar sem fram kom að nægilegt væri að yfirkjörstjórnin kannaði atkvæði C-lista. Þegar það símtal átti sér stað liggur einnig fyrir að annar fulltrúi yfirkjörstjórnar hafi verið mættur eða kl. 12.35. Af samskiptum oddvita og landskjörstjórnar má álykta að oddviti hafi þá fyrst fengið vitneskju um framangreindan atkvæðamun. Þó verður að hafa í huga að þegar síðustu tölur um úrslit kosninga höfðu verið kynntar í fjölmiðlum kl. 9.20 í Norðausturkjördæmi lá fyrir framangreindur atkvæðamunur. Hvað viðkemur athöfnum oddvita eins og hann hefur lýst þeim verður einnig að líta til hlutverks hans og stöðu sem oddvita yfirkjörstjórnar kjördæmis sem annast skipulagningu og framkvæmd kosninga. Að auki má greina af myndefni eftirlitsmyndavéla nokkurn umgang starfsmanna hótelsins um starfsmannainngang í fremri sal. — opið á milli. Oddviti var því ekki í þeim skilningi einn á talningarsvæðinu.
Í þriðja lagi getum við þess í nefndarálitinu að umrætt starfsfólk Hótels Borgarness hafi svarað því til að það hafi ekki átt við kjörgögnin og ekki séð aðra eiga við þau. Að auki hefur starfsfólkið gert grein fyrir ferðum sínum en samkvæmt gögnum málsins liggur fyrir að aðeins tveir starfsmenn af fjórum fóru inn í talningarsalinn til að sinna störfum sínum. Á eftirlitsmyndavélum sést að starfsfólk hótelsins hafi ekki horfið úr mynd eftir kl. 9.20 á meðan fundarfrestun yfirkjörstjórnar stóð yfir. Miðað við fyrirliggjandi gögn verður að telja afar ólíklegt að starfsfólk hótelsins hafi haft tækifæri til þess að eiga við kjörgögnin sem leitt hafi til þeirra breytinga sem urðu við seinni talningu atkvæða.
Í fjórða lagi liggur fyrir að fjöldi notaðra atkvæðaseðla og ónotaðra seðla stemmdi við heildarfjölda atkvæðaseðla sem dómsmálaráðuneytið hafði látið yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis í té. Af þeim upplýsingum verður ekki ráðið að átt hafi verið við ónotaða seðla með þeim hætti að haft hafi áhrif á úrslit kosninganna.
Í fimmta lagi hefur fengist skýring á þeirri bókun í fundargerð yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis að „heildaratkvæðum fjölgaði um tvö vegna innsláttarvillu í lok talningar“. Er átt við bókhaldsvillu á uppgjörsblaði fyrir talningu, þar sem skráð er mínus 1 í ógildum seðlum í stað plús 1, en fyrir liggur að sú villa hafi byggst á misskilningi í samskiptum starfsmanns yfirkjörstjórnar og kjörstjórnarmanna á Ísafirði. Að mati undirritaðra verður að telja framkomnar skýringar trúverðugar.
Í sjötta lagi hefur undirbúningsnefndin farið yfir kjörgögn í Norðvesturkjördæmi frá 25. september síðastliðnum með ítarlegum hætti, m.a. með það að markmiði að kanna hvort átt hafi verið við kjörgögnin. Í þeirri yfirferð var hverjum og einum kjörseðli flett. Sérstaklega voru skoðaðir seðlar þar sem X hafði verið strokað út hjá einum framboðslista en merkt við annan framboðslista. Af þeirri yfirferð mátti ráða að fáir atkvæðaseðlar, samtals 6, hafi haft ummerki um að strokað hafi verið út X í ferningi fyrir framan listabókstaf og merkt X í ferningi við annan listabókstaf. Og af því að munurinn var minnstur í C-lista þá skoðuðum við það sérstaklega varðandi hann og í engu tilfelli hafði X verið strokað út við C-lista.
Auðir og ógildir seðlar voru einnig skoðaðir sérstaklega og ekkert kom því fram sem benti til þess að þær breytingar sem urðu á atkvæðatölum framboðslista eftir seinni talningu megi rekja til þeirra breytinga sem urðu á fjölda auðra og ógildra seðla.
Atkvæðaseðlar C-, M-, J- og D-lista voru auk þessa stemmdir af með talningu í tveimur umferðum en sú afstemming leiddi ekki til frávika, í fjölda atkvæða, þó að undanskildu einu aukautankjörfundaratkvæði sem fannst í kassa M-lista en var merkt D-lista.
Í könnun nefndarinnar komu fram nokkur frávik í flokkun atkvæða, eins og lýst er í málsatvikalýsingu í kafla 2.2.8, og hefur nefndin gengið úr skugga um að þau raski ekki úrslitum alþingiskosninga sem fram fóru 25. september síðastliðinn.
Með hliðsjón af framangreindu telja undirrituð að í yfirferð nefndarinnar á kjörgögnum hafi ekkert komið fram sem bendir til þess að átt hafi verið við kjörgögnin. Þá verður ekki heldur séð að fram hafi komið vísbendingar um að kjörgögnin feli í sér aðrar upplýsingar en þær sem landskjörstjórn byggði úthlutun þingsæta á 1. október 2021.
Í sjöunda lagi hefur vinna undirbúningsnefndar beinst að því að koma auga á hvort misbrestur í talningarferli hafi átt sér stað og hverjar orsakir gætu legið þar að baki. Fyrir liggur að á meðan á talningu atkvæða stóð var verklagi breytt. Hefur komið fram að það hafi verið til þess að flýta fyrir þannig að talningin gengi greiðar fyrir sig. Ekki er hægt að fullyrða að það geti skýrt þær breytingar sem urðu á atkvæðatölum framboðslista við seinni talningu atkvæða og hvort þar hafi átt sér stað mannleg mistök. Almennt verður þó að ætla að við svo vandasamt verk sem talning atkvæða er sé nákvæmni gætt og ýtrustu kröfur gerðar til þess að draga úr hættu á mistökum. Eigi að síður er ekki hægt að útiloka að það breytta verklag sem tekið var upp við talningu atkvæða í þeim tilgangi að flýta fyrir, og það takmarkaða rými sem fólk hafði til að athafna sig við talningu, geti að einhverju leyti skýrt þau frávik sem komu í ljós við seinni talningu atkvæða og hafi jafnframt leitt til mannlegra mistaka sem geti skýrt þann misbrest sem varð í talningarferlinu. Þá benda frávikin sem komu í ljós við yfirferð undirbúningsnefndar á kjörgögnum til þess að þar hafi verið um að ræða mistök við flokkun, þ.e. flokkun seðla.
Þegar framangreind atriði eru virt í heild sinni telja undirrituð að ekki hafi komið fram vísbendingar sem gefa tilefni til að ætla að sá annmarki sem var á vörslu kjörgagna hafi haft áhrif á úrslit kosninganna í Norðvesturkjördæmi, þ.e. leitt til þeirra breytinga sem urðu á atkvæðatölum framboðslista við seinni talningu atkvæða. Jafnframt verður ekki séð að breytingarnar megi rekja til þess að þingmaður, umboðsmenn hans eða meðmælendur hafi vísvitandi átt sök á þeim annmörkum sem áður er getið, samanber síðari hluta 1. málsliðar 3. mgr. 120. gr. laga um kosningar til Alþingis.
Það er jafnframt afstaða undirritaðra að yfirkjörstjórn hafi haft heimild til þess að bregðast við villum og öðrum frávikum sem hún verður áskynja um og geti leitað leiða til þess að leiðrétta þau að gættum ákvæðum laga um kosningar til Alþingis, samanber kafla III. 2.5.4 í greinargerð undirbúningsnefndar. Er þá m.a. vísað til þess að umboðsmenn séu viðstaddir og að talið sé fyrir opnum dyrum. Önnur niðurstaða myndi leiða til þess að vilji kjósenda í lýðræðislegum kosningum næði ekki fram að ganga. Er ekki forsvaranlegt að slík niðurstaða fái að standa óbreytt. Það er því ekki unnt, að mati undirritaðra, að líta svo á að ákvörðun yfirkjörstjórnar um seinni talningu ein og sér hafi falið í sér annmarka á framkvæmd kosninganna.
Þeir sex nefndarmenn sem undir þetta álit rita vilja að lokum árétta það sem rakið er í upphafi þessa kafla og kafla III. 2.5 í greinargerð undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa að þrátt fyrir framangreinda niðurstöðu hafa komið í ljós, þ.e. þá niðurstöðu að ekki beri að ógilda kosninguna, umtalsverðir annmarkar á framkvæmd talningar atkvæða í Norðvesturkjördæmi sem mikilvægt er að draga lærdóm af og koma þarf í veg fyrir að slíkt endurtaki sig. Í því sambandi leggur nefndarhlutinn ríka áherslu á að fylgt verði eftir þeim ábendingum og áréttingum sem lagðar eru til í IV. kafla greinargerðarinnar og að stjórnvöld og stjórnmálasamtök verði í fararbroddi þar um með það m.a. að markmiði að bæta upplýsingagjöf og samræma hlutverk.
Að þessu sögðu þá vísar nefndarhlutinn til ábendinga og áréttinga sem fram koma í ítarlegu máli í greinargerð undirbúningsnefndarinnar og áréttar það sem þar kemur fram um mikilvægi þess að gætt sé samræmds verklags við framkvæmd kosninga, beitt sé svokallaðri næmisgreiningu og endurtalningu atkvæða við kosningar, störf umboðsmanna, aðstöðu fatlaðs fólks á kjörstað og rétt til að taka þátt í lýðræðislegum kosningum, meðferð utankjörfundaratkvæða og stöðu og heimildir undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa. Þeir nefndarmenn sem hér undirrita taka heils hugar undir það sem fram kom í greinargerð undirbúningsnefndarinnar að þessu leyti.
Niðurstaða okkar sex nefndarmanna sem undir þetta skjal ritum er með öðrum orðum sú að þó að annmarkar hafi komið fram á framkvæmd varðandi alþingiskosningarnar í Norðvesturkjördæmi séu ekki lagaskilyrði til þess að ógilda kosninguna. Er þá byggt á því að í 3. mgr. 120. gr. er gert ráð fyrir að því aðeins sé hægt að ógilda kosningu að hægt sé að sýna fram á að annmarkarnir sem í hlut eiga hafi haft áhrif á gildi kosninganna. Við teljum að við höfum skoðað með öllum þeim hætti sem hægt var hvort einhverjar vísbendingar hefðu komið fram sem bentu til þess að gallarnir, sem vissulega voru fyrir hendi, hefðu haft áhrif á úrslit kosninganna. Við fundum ekki neinar vísbendingar um það og ekkert orsakasamhengi milli gallans, sem fyrst og fremst lýtur að vörslu kjörgagnanna, og síðan úrslita kosninganna. Þess vegna varð það niðurstaða okkar að við gætum ekki annað, samkvæmt skyldum okkar í samræmi við lög og hlutverk okkar sem nefndarmenn í kjörbréfanefnd, en lagt til að kjörbréf allra þeirra 63 þingmanna sem fengu útgefin kjörbréf frá landskjörstjórn 1. október síðastliðinn verði staðfest.