152. löggjafarþing — þingsetningarfundur

rannsókn kjörbréfa.

[13:33]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er auðvitað kjarni málsins. Við byggjum á því að tölurnar í seinni talningunni séu réttar. Yfirferð okkar í Borgarnesi í fleiri en eitt skipti og fleiri en tvö fólst í því að kanna kjörgögnin, hvort einhver ummerki væru um að kjörgögnin væru menguð, eins og hv. þingmaður tók til orða. Það sem ítarleg athugun okkar í síðustu ferð okkar leiddi í ljós var að það var um að ræða stakar flokkunarvillur til viðbótar við það sem áður hafði komið fram. Við fórum í miklu ítarlegri könnun á gögnunum vegna þess að við sáum þetta. Þannig að við höfum í nefndinni enga ástæðu til að rengja þær tölur sem þarna koma fram og þegar kemur að mati á gallanum förum við auðvitað í það að skoða hvort einhver ummerki, einhverjar vísbendingar, eitthvað, hafi komið fram sem bendi til þess að átt hafi verið við kjörgögnin. Svo var ekki. Svo einfalt er það mál.