152. löggjafarþing — þingsetningarfundur

rannsókn kjörbréfa.

[13:43]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Fyrir liggur ítarleg greinargerð undirbúningsnefndar kjörbréfanefndar sem kjörbréfanefnd, sem kosin var í gær, hefur gert að sinni. Í henni er, eins og fram hefur komið hér í máli fyrsta ræðumanns, fjallað um starf undirbúningsnefndarinnar, verklag, upplýsingaöflun, skýrslutöku og könnun á framkvæmd alþingiskosninganna 25. september sl., þær kærur sem nefndinni bárust og hvernig brugðist var við þeim. Öll gögn liggja fyrir og hv. alþingismenn hafa haft tækifæri til að kynna sér þau.

Eins og alþjóð veit þá hófst atburðarás um hádegisbil sunnudaginn 26. september sem enn sér ekki fyrir endann á. Þá hafði næmisgreining stærðfræðings landskjörstjórnar á upplesnum lokatölum í öllum sex kjördæmum sýnt að mjög litlu, tveimur atkvæðum, munaði á hlutfalli atkvæða C-lista Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi og Suðurkjördæmi, það litlu að ef tölur breyttust gæti það leitt til þess að breyting yrði á því hverjir tækju sæti á Alþingi.

Það er fróðlegt í þessu samhengi að bera saman viðbrögð og framkvæmd við þessari uppgötvun landskjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi annars vegar og í Suðurkjördæmi hins vegar, eins og lesa má í fundargerðum þar um. Þar er lýsing annars vegar á því hvernig skuli standa formlega að réttum ákvörðunum og bókað og hvernig það er ekki gert.

En lítum fyrst til kjördagsins, laugardagsins 25. september, og atvika á Hótel Borgarnesi þar sem yfirkjörstjórn og starfsfólk hennar hafði aðsetur og talning fór fram. Fyrst er að nefna að flokkun atkvæða hófst fyrir luktum dyrum um kl. 19 um kvöldið. Það er alvanalegt að flokkun atkvæða hefjist áður en kjörfundi lýkur en talning þeirra má ekki hefjast fyrr en kjörstöðum hefur verið lokað enda þarf hún að fara fram fyrir opnum dyrum og að viðstöddum umboðsmönnum framboðslistanna. Ljóst er að þannig var það ekki í Norðvesturkjördæmi því þar voru fyrstu tölur lesnar upp u.þ.b. tíu mínútum yfir tíu um kvöldið og höfðu þá verið talin 5.932 atkvæði.

Í öðru lagi vil ég nefna að könnun undirbúningsnefndar leiddi í ljós að verklagi við talninguna, og þá á ég við ferlið sem felst í afstemmingu upp úr kjörkössum, flokkun atkvæða eftir framboðslistum og svo talningu í bunka sem eru eftir atvikum 50 eða 100 atkvæði, var breytt í miðjum klíðum. Ber viðstöddum ekki saman um klukkan hvað nákvæmlega það var gert eða hvernig sú ákvörðun var tekin. En það er ekki eina dæmið um ósamræmi tímasetninga sem kom í ljós við könnun nefndarinnar.

Í þriðja lagi langar mig að nefna að færslum í gerðabók, þ.e. fundargerð yfirkjörstjórnar, var ábótavant. Hún var hvorki færð jafnóðum né alls þess getið sem þar ber að skrá, t.d. nákvæmlega viðveru umboðsmanna, svo sem hvenær þeir mættu og klukkan hvað þeir fóru, úrskurði um vafaatkvæði og hvernig þau voru borin undir umboðsmenn á staðnum og einnig að ákvörðun um endurtalningu, sem sagt á sunnudeginum, var ekki bókuð. Fyrir liggur að fundargerðin var rituð eftir á og aðeins undirrituð í gerðabókinni af oddvita yfirkjörstjórnar. Einnig að gerðar voru athugasemdir við lokaútgáfu hennar en ekki var orðið við þeim öllum.

Forseti. Á fundi sínum 1. október sl. gaf landskjörstjórn út kjörbréf 63 þingmanna og varamanna þeirra. Með þeim fylgdi bókun landskjörstjórnar þar sem fram kom að yfirkjörstjórn í Norðvesturkjördæmi hafi ekki getað staðfest að kjörgagna hafi verið gætt með fullnægjandi hætti. Kjörgögnin höfðu ekki verið innsigluð og um þá staðreynd hverfist þetta mál. Í málsatvikalýsingu er gerð ítarleg grein fyrir atburðum eins og þeir komu fyrir undirbúningsnefndina. Nefndin fékk einnig gögn frá lögreglunni á Vesturlandi sem aflað var vegna rannsóknar á kæru Karls Gauta Hjaltasonar á mögulegum lögbrotum við framkvæmd kosninganna.

Samkvæmt 46. gr. stjórnarskrár lýðveldisins er það verkefni þingmanna að samþykkja kjörbréf og því erum við hér samankomin. Rannsókn undirbúningsnefndar og þingskjöl kjörbréfanefndar leggja grunn að þeirri ákvörðun sem þarf að taka. Þegar öllu er á botninn hvolft er það verkefni okkar sem höfum í hönd kjörbréfin sem voru gefin út 1. október sl. að leggja mat á og skera úr um gildi kosninganna í Norðvesturkjördæmi.

Frú forseti. Ég ætla nú að fara í aðalatriðum yfir efni álits míns eins og það liggur fyrir í þingskjali.

Í áliti þess hluta nefndarinnar sem hv. þm. Birgir Ármannsson talaði fyrir hér í fyrstu ræðu undir þessum lið, þar sem segir um ágreiningsatkvæði, úthlutun þingsæta, bókanir umboðsmanna og aðrar aðfinnslur og ábendingar og áréttingar, samanber I., II og IV. kafla álitsins — ég tek undir þann hluta þess álits. Þá tek ég einnig undir umfjöllun í fyrrnefndu áliti um kosningakærur, að því marki sem efni þeirra lýtur að öðru en framkvæmd kosninga í Norðvesturkjördæmi, samanber kafla III í því áliti og vona ég nú að þingheimur hafi skilið hvað ég var að segja.

Forseti. Um þau kæruefni sem varða framkvæmd kosninga í Norðvesturkjördæmi, málsástæður og lagarök vísast til undirkafla 2.3 í kafla III í greinargerð undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa. Um mat á áhrifum annmarka á kosningum í kjördæminu vísast til undirkafla 2.5.8. Við upptalningu á annmörkum, samanber undirkafla 2.5.8, er tekið fram að það sé mat þeirra er undir greinargerðina rita að hver og einn annmarki sé ekki þess eðlis að hægt sé að sýna fram á að hann einn hafi haft áhrif á niðurstöðu kosninganna. Hafa ber því í huga að stakur annmarki kann þannig ekki að leiða til ógildingar ef ekki má ætla að annmarkinn hafi haft áhrif á úrslitin, eins og fyrr segir.

Í 3. mgr. 120. gr. laga um kosningar til Alþingis kemur fram, með leyfi forseta, að „ef þeir gallar eru á framboði eða kosningu þingmanns sem ætla má að hafi haft áhrif á úrslit kosningarinnar úrskurðar Alþingi kosningu hans ógilda“. Það er í samræmi við þá staðreynd að kjósendur eiga að geta treyst því að úrslit kosninga standi og að lýðræðislegur vilji þeirra sé virtur. Í fræðilegri umfjöllun má finna ólíkar nálganir á það hvaða mælikvarðar hafa verið lagðir til grundvallar við mat á áhrifum annmarka á gildi kosninga og að val á ógildingarmælikvarða sé atviksbundið.

Í greinargerðinni er þeim annmörkum sem voru á framkvæmd alþingiskosninga í Norðvesturkjördæmi lýst en vægi þeirra er mismunandi. Undirrituð tekur undir þá ályktun undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa að ekki verði séð að þeir annmarkar sem lúta að viðbrögðum yfirkjörstjórnar í aðdraganda endurtalningar, færslu gerðabókar og viðveru umboðsmanna, samanber b–d-lið í undirkafla 2.5.8, hafi haft áhrif á úrslit kosninganna og eigi þannig ekki hver og einn að leiða til ógildingar kosninga. Þó má ljóst vera að fjarvera umboðsmanna, svo dæmi sé tekið, getur verið álitinn verulegur annmarki. Ómarkviss ritun í gerðabók, sem ekki var framkvæmd í samræmi við skýr fyrirmæli laga um kosningar til Alþingis, leiðir svo til þess að framkvæmd verður ógagnsæ og rýrir traust á niðurstöðunni. Þannig varða umræddir annmarkar hvor um sig reglur um framkvæmd kosninga en einnig reglur sem ætlað er að tryggja réttaröryggi og traust á niðurstöðu kosninga.

Þeim annmarka sem lýtur að vörslu kjörgagna á meðan yfirkjörstjórn í Norðvesturkjördæmi gerði hlé á fundi sínum sunnudaginn 26. september um kl. 7.35 og þar til hún kom aftur saman um kl. 13.00 er vandlega lýst í greinargerð undirbúningsnefndarinnar og vísast til þeirrar lýsingar. Þann annmarka verður að telja alvarlegastan af þeim sem voru á framkvæmd kosninganna. Í a-lið undirkafla 2.5.8 eru rakin mismunandi sjónarmið um hvernig meta beri áhrif þeirra annmarka. Kemur þar fram að það komi í hlut kjörbréfanefndar að leggja fram tillögur um afgreiðslu kjörbréfa byggðar á því mati.

Fyrir liggur að á meðan yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis gerði hlé á fundi sínum sunnudaginn 26. september voru kjörgögn geymd í opnum kössum í rými sem ekki var læst að öllu leyti eða innsiglað og öryggismyndavélar náðu ekki til. Jafnframt liggur fyrir að fjórir starfsmenn Hótels Borgarness höfðu aðgang að því svæði þar sem kjörgögnin voru geymd. Þá er ekki ljóst hvenær bakdyrum í talningarsal var læst. Loks liggur fyrir að þegar oddviti yfirkjörstjórnar mætti á talningarsvæðið kl. 11.59 var hann einn úr yfirkjörstjórn þar til næsti kjörstjórnarmaður mætti kl. 12.35 á svæðið en samkvæmt upplýsingum lögreglu var starfsfólk hótelsins á þeim tíma á ferðinni út og inn í sal.

Þá vil ég enn og aftur minnast á bókun landskjörstjórnar frá fundi hennar 1. október 2021 með umboðsmönnum stjórnmálasamtaka að eigi hafi „borist staðfesting frá yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis á að meðferð og varðveisla kjörgagna á talningarstað í kjördæminu hafi verið fullnægjandi“. Þannig vakti landskjörstjórn athygli Alþingis á því að vafi kunni að vera á því að kjörgögn hafi verið varin með þeim hætti að treysta megi að þau endurspegli vilja kjósenda við alþingiskosningarnar sem fram fóru 25. september.

Sé þetta allt virt verður að telja að alvarlegur annmarki hafi verið á vörslu kjörgagnanna sem meta þarf hvort hafi haft áhrif á úrslit kosninganna í skilningi 3. mgr. 120. gr. laga um kosningar til Alþingis. Er þá haft í huga að við seinni talningu atkvæða urðu umtalsverðar breytingar á atkvæðatölum framboða, sem höfðu áhrif á úthlutun jöfnunarsæta í kjördæminu og á landsvísu. Þannig fjölgaði til að mynda heildaratkvæðum um tvö, auðum seðlum fækkaði um 12 og ógildum seðlum fjölgaði um 11. Þá fækkaði atkvæðum C-lista um níu og atkvæðum D-lista fjölgaði um 10, en þar af voru átta atkvæði í atkvæðabunka C-lista og tvö önnur atkvæði sem höfðu mislagst í aðra bunka. Aðrar breytingar á atkvæðatölum framboðslista hafa af hálfu yfirkjörstjórnar verið skýrðar svo að „eitt og eitt atkvæði hafi mislagst í atkvæðabunkum“. Hefur kjörstjórnin útskýrt breytingarnar svo að um mannleg mistök hafi verið að ræða.

Í 3. mgr. 120. gr. laga um kosningar til Alþingis kemur fram að „ef þeir gallar eru á framboði eða kosningu þingmanns sem ætla má að hafi haft áhrif á úrslit kosningarinnar úrskurðar Alþingi kosningu hans ógilda“. Af ákvæðinu má ráða þá meginreglu að beita skuli sérstökum mælikvarða við mat á gildi kosninga og að beiting almenns mælikvarða við slíkar aðstæður komi einungis til álita að annmarkinn sé til þess fallinn að hafa áhrif á úrslit kosninga. Við beitingu hins sérstaka mælikvarða, þar sem leitast er við að leiða í ljós hvort ætla megi að annmarki hafi eða hafi ekki haft áhrif á úrslit kosninganna, getur niðurstaðan orðið sú að ekki sé hægt að leiða slíkt í ljós. Samkvæmt minnisblaði forsætisráðuneytisins, dagsettu 22. október 2021, geta þannig önnur sjónarmið haft áhrif á hversu ströngum mælikvarða eigi að beita við mat á því hvort ágallar leiða til ógildingar. Eðli og tilgangur þeirra réttarreglna sem brotnar hafa verið skipta til að mynda máli í þeim efnum. Þannig megi ætla að það hafi minni áhrif ef ágalli varðar eingöngu reglur um framkvæmd en meiri áhrif ef ágalli varðar reglur sem er ætlað að tryggja réttaröryggi eða traust á niðurstöðu. Getur þá reynt á hvort viðunandi sé að einhver efnislegur vafi sé til staðar við matið. Í ljósi þess að alþingiskosningum er ætlað að leiða í ljós lýðræðislegan vilja kjósenda er slíkt óviðunandi að mati undirritaðrar og vísast þar til ákvörðunar Hæstaréttar frá 2011 um kosningar til stjórnlagaþings. Þar var áréttað það meginviðhorf laga um kosningar til Alþingis að gagnsæi eigi að ríkja við talningu atkvæða og skuli í því sambandi áréttað að ekki sé nóg að rétt sé talið ef ekki ríki traust um að þannig hafi verið að verki staðið.

Álitaefni það sem hér er til umfjöllunar beinist að því hvort kjörgögn hafi verið óvarin um nokkurra klukkustunda skeið og hvort fram hafi komið fullnægjandi upplýsingar eða skýringar á því að kjörgögn geymi sannarlega vilja kjósenda við alþingiskosningarnar 25. september þrátt fyrir þann annmarka. Til að varpa ljósi á það verður með hliðsjón af atvikum málsins að líta til eftirfarandi atriða sem undirrituð hefur skoðað sérstaklega og lagt mat á:

Í fyrsta lagi ber að líta til þess að af upptökum úr eftirlitsmyndavélum má sjá að umferð fólks um talningarsalinn á tímabilinu frá kl. 7.35 til kl. 12.35 er takmörkuð við fjóra starfsmenn Hótels Borgarness og oddvita yfirkjörstjórnar. Þá bera upptökur úr eftirlitsmyndavélum með sér að frá því að oddviti mætir á talningarsvæðið hafi annað starfsfólk hótelsins einnig verið þar að störfum í fremri sal, eins og fram hefur komið. Einnig var hurð aðalinngangs salarins ólæst. Af staðsetningu eftirlitsmyndavéla má enn fremur ráða að ekki hafi aðrir en framangreint starfsfólk hótelsins og oddviti farið um aðalinngang og starfsmannainngang sem liggja að talningarsvæðinu á umræddu tímabili. Vert er að minna á að engin eftirlitsmyndavélanna beindist að kjörgögnunum þar sem þau voru geymd í talningarsalnum í opnum kössum. Enn fremur liggur fyrir að starfsfólk hótelsins tók ljósmyndir af óvörðum kjörgögnum meðan á fundarfrestun yfirkjörstjórnar stóð. Með hliðsjón af þessum upplýsingum er ekki unnt að fullyrða að kjörgögn hafi verið varin með fullnægjandi hætti á umræddum tíma, samanber einnig bókun landskjörstjórnar 1. október.

Í öðru lagi hefur oddviti sagt svo frá að hann hafi á tímabilinu frá kl. 11.59 til kl. 12.35 ekki átt við kjörgögnin. Hann hafi farið inn í talningarsalinn til þess að taka til og undirbúa störf kjörstjórnarinnar þegar hún kæmi aftur til starfa. Fundur yfirkjörstjórnar átti að hefjast á ný kl. 13.00 en fulltrúar kjörstjórnarinnar dvöldu á hótelinu á meðan fundinum var frestað. Fyrir liggur að kl. 12.32 átti landskjörstjórn símtal við oddvita, þar sem bent var á að tveimur atkvæðum munaði á atkvæðahlutfalli C-lista Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi og Suðurkjördæmi, samkvæmt uppgefnum tölum til fjölmiðla. Þá liggur jafnframt fyrir að kl. 12.38 átti oddviti samtal við landskjörstjórn þar sem fram kom að nægilegt væri að yfirkjörstjórnin kannaði atkvæði C-lista. Þrátt fyrir að greina megi af myndefni eftirlitsmyndavéla umgang starfsfólks hótelsins um starfsmannainngang verður ekki hjá því komist að álykta að kjörgögnin hafi ekki verið varin.

Í þriðja lagi fór undirbúningsnefndin yfir auða og ógilda atkvæðaseðla. Af fundargerð yfirkjörstjórnar má ráða að ógildum seðlum hafði fjölgað um 11 og auðum fækkað um 12 milli fyrri og seinni talningar. Í yfirferð undirbúningsnefndar fannst einn gildur atkvæðaseðill hjá auðum seðlum. Ekki er önnur skýring tilgreind en að um mistök hafi verið að ræða. Við athugun á ógildu seðlunum hefur komið í ljós að fimm seðlar voru ógildir af þeim sökum að krotað hafði verið á bakhlið þeirra en ekki merkt við neinn listabókstaf á framhlið. Aðrir ógildir kjörfundarseðlar, samtals 13, gáfu ekki tilefni til athugasemda og enginn þeirra var með merkingu við C-lista. Það veldur á hinn bóginn vandkvæðum að ekki er að finna lýsingu á þeim atkvæðaseðlum sem reyndust ógildir og voru með auðum seðlum og hið sama á við að því er varðar lýsingu á þeim seðlum sem úrskurðaðir voru ógildir eftir fyrri talningu. Hefur því ekki verið upplýst hvernig fjölgun hinna ógildu seðla er nákvæmlega til komin og hvaða ágallar hafi verið á þeim sem valdið hafi því að þeir voru metnir ógildir, samanber 1. mgr. 103. gr. laga um kosningar til Alþingis. Á það skal einnig minnt að annmarkar voru á því hvort umboðsmenn voru kallaðir til við að meta vafaatkvæði á meðan flokkun og talningu stóð og ritun gerðabókar ábótavant í þeim efnum.

Í fjórða lagi fór undirbúningsnefndin yfir kjörgögn við atkvæðagreiðsluna í Norðvesturkjördæmi 25. september sl. Þrátt fyrir að nefndin hafi greint þar nokkur frávik í flokkun atkvæða, eins og lýst er í málsatvikalýsingunni, hefur verið gengið úr skugga um að þau frávik breyttu ekki niðurstöðu kosninganna, eins og fram hefur komið, yrðu þau talin á ný í samræmi við fyrirmæli laga um kosningar til Alþingis. Að mínu mati er aftur á móti til staðar annmarki er snýr að meðferð og vörslu kjörgagna sem þriðja talningin eða endalausar endurtalningar geta ekki bætt úr.

Í fimmta lagi hefur ekki tekist að upplýsa orsakir þess að atkvæðum fækkaði um níu hjá C-lista þar sem átta atkvæðaseðlar tilheyrðu D-lista og einn B-lista eða að atkvæðum hjá D-lista fjölgaði um 10, um sjö hjá J-lista auk þess sem fimm atkvæði víxluðust mill B- og M-lista.

Í sjötta lagi leiddi könnun undirbúningsnefndarinnar í ljós að á meðan talningu atkvæða stóð var verklagi breytt. Ekki er hægt að fullyrða að það geti skýrt þær breytingar sem urðu á atkvæðatölum framboðslista við seinni talningu atkvæða. Almennt verður þó að ætla að við svo vandasamt verk sem talning atkvæða er sé nákvæmni gætt og ýtrustu kröfur gerðar til þess að draga úr hættu á mistökum. Eigi að síður er ekki hægt að útiloka að það breytta verklag sem tekið var upp við talningu atkvæða og það takmarkaða rými sem fólk hafði til að athafna sig við talninguna geti að einhverju leyti skýrt þau frávik sem komu í ljós við seinni talningu atkvæða.

Þegar framangreind atriði eru virt í heild sinni er einkum þrennt sem veldur því að ekki hefur tekist að staðreyna að kjörgögn hafi verið varin svo fullnægjandi sé. Í fyrsta lagi liggur ljóst fyrir að vörslur kjörgagna voru ótryggar frá því að yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis gerði hlé á störfum sínum kl. 7.35 á sunnudagsmorgni og þar til hún kom saman á ný um kl. 13.00. Ekki hefur tekist að leiða í ljós svo öruggt sé að kjörgögnin hafi á þeim tíma verið varin með þeim hætti að þau endurspegli vilja kjósenda við alþingiskosningarnar. Í öðru lagi er ljóst að meðferð vafaatkvæða þar sem úrskurða skyldi um gildi þeirra hefur ekki verið í samræmi við ákvæði laga um kosningar til Alþingis, en bóka skal í gerðabók yfirkjörstjórnar um afgreiðslu einstakra ógildra kjörseðla og lýsingu á því í hverju gallarnir felist og hvað hafi leitt til þess að þá eigi að meta ógilda, samanber 1. mgr. 103. gr. laga um kosningar til Alþingis. Liggja þannig ekki fyrir upplýsingar um meðferð ógildra atkvæðaseðla. Í þriðja lagi verður að líta til þess að ekki hafa komið fram skýringar á þeim tilfærslum sem urðu á atkvæðatölum framboða eftir seinni talningu atkvæða. Er þá sérstaklega litið til þess að í kassa með atkvæðum merktum C-lista reyndust vera átta atkvæði merkt D-lista og eitt atkvæði merkt B-lista.

Í ljósi alls þessa verður að leggja til grundvallar að ekki hafi tekist að upplýsa með fullnægjandi hætti að varðveisla kjörgagna í Norðvesturkjördæmi við alþingiskosningarnar 25. september hafi verið með þeim hætti að tryggt sé að þau geymi lýðræðislegan vilja kjósenda og að annmarkar á varðveislunni hafi þar með ekki haft áhrif á úrslit kosninganna í kjördæminu.

Í dómi Hæstaréttar í máli nr. 96/1980 segir að annmarkar er varða kosningaleynd teljist ógildingarannmarkar án þess að sýnt sé fram á að þeir hafi í reynd haft áhrif á niðurstöðu kosninga. Með vísan til þess má því ætla að þeir annmarkar sem hafa verið reifaðir hér að framan er lutu að kosningum í Norðvesturkjördæmi séu þess eðlis að þeir leiði til ógildingar kosninganna í kjördæminu án þess að færð sé sönnun á að þeir hafi í reynd haft áhrif á niðurstöðu kosninganna. Og við það má bæta að um það er deilt hver áhrifin séu, þ.e. sumir líta svo á að það að hlutfallslegt vægi flokkanna sé hið sama sé til sönnunar þess að áhrifin hafi engin verið. Ég tek ekki undir það, enda hefur breytingin frá svokölluðum fyrri tölum til seinni talna breytt því hverjir voru lýstir þingmenn og fengu útgefin kjörbréf.

Með vísan til 121. laga um kosningar til Alþingis tel ég samkvæmt framansögðu að uppkosning þurfi að fara fram í Norðvesturkjördæmi. Í því felst jafnframt, samanber 5. gr. laga um þingsköp Alþingis, að ekki standa skilyrði til þess að samþykkja þau kjörbréf sem landskjörstjórn gaf út 1. október 2021 til sjö kjördæmakjörinna þingmanna í Norðvesturkjördæmi og þeirra níu þingmanna sem hlutu jöfnunarsæti við alþingiskosningarnar 25. september sl.

Eins og ég sagði í upphafi máls míns, hæstv. forseti, þá hverfist þetta mál um bókun landskjörstjórnar sem send var undirbúningsnefnd kjörbréfanefndar ásamt útgefnum kjörbréfum og varðar að enn sé óstaðfest að meðferð kjörgagna í Norðvesturkjördæmi hafi verið fullnægjandi. Það eitt er aðalatriði þessa máls og það varðar traust almennings á kosningakerfinu í þessu landi, kerfi sem er undirstaða þess að við getum kallað okkur lýðræðisríki.