152. löggjafarþing — þingsetningarfundur

rannsókn kjörbréfa.

[14:17]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Mig langar að spyrja hv. þingmann um það að hann virðist ekki vera að byggja á því að orsakatengsl séu á milli annmarkans á vörslu kjörgagnanna og þess að annmarkinn hafi haft áhrif á úrslit kosninganna. Annmarkinn einn og sér getur aldrei haft áhrif á úrslit kosninganna. Það er alveg skýrt. Það verður eitthvað að gerast á milli. Í áliti hv. þingmanns kemur ekkert fram hvað það er sem á sér stað á milli, eftir að fundi er frestað og talið er aftur. Hv. þingmaður virðist byggja á því að ætla megi að starfsmenn Hótels Borgarness hafi átt við kjörgögnin eða þá að oddviti yfirkjörstjórnar hafi átt við kjörgögnin. Hann er kjörinn trúnaðarmaður Alþingis í kjördæminu til að sjá um kosningarnar. Það er engum öðrum til að dreifa nema starfsmönnum hótelsins og oddvita yfirkjörstjórnar.

Ég vil spyrja hv. þingmann: Hver eru orsakatengslin? Hann virðist ekki byggja á neinum orsakatengslum milli annmarkans og þess að það hafi áhrif. Í öðru lagi virðist hann ekki byggja á orðalagi 3. mgr. 120. gr. laga um kosningar til Alþingis. Hv. þingmaður sagði nú rétt áðan að orðalagið eitt og sér réði þessu ekki og það væri ekki eini mælikvarðinn. Þá virðist vera að álitið byggist ekki á lögum, það virðist ekki byggjast á 3. mgr. 120. gr. heldur einhverju allt öðru. Mig langar að spyrja hvað það er sem það byggir á.