152. löggjafarþing — þingsetningarfundur

rannsókn kjörbréfa.

[14:19]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka spurninguna og býð þingmanninn velkominn til þings. Hér stendur hnífurinn í kúnni, ef svo má segja. Við erum ekki í sakamálarannsókn. Hér þarf ekki að leiða málið til lykta með orsakatengslum. Það er matið sem fer hér fram innan lagarammans. Þar stendur í rauninni niðurstaða nefndarinnar og ólík afstaða okkar til hennar. Það er ekki sakbending í gangi. Það er verið að leiða líkur og það er ljóst að við getum ekki fullyrt og við getum ekki staðfest að varðveisla kjörgagna hafi verið með fullnægjandi hætti. Af því leiðir að það er ekki hægt að treysta gögnunum. Þannig er það.