152. löggjafarþing — þingsetningarfundur

rannsókn kjörbréfa.

[14:53]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir að það er mikilvægt að lesa og það höfum við gert í átta vikur, held ég, bæði lesið og hlustað á framburð ýmissa gesta og upplýsingar frá sérfróðum aðilum, bæði í lögum um framkvæmd kosninga og framkvæmd talningar o.s.frv. Fundirnir hafa verið 34 og nefndin hefur verið einstaklega vel mönnuð og það sem við höfum lagt áherslu á í þeirri vinnu er ekki bara að lesa og gera okkur grein fyrir málum heldur líka að hlusta hvert á annað.