152. löggjafarþing — þingsetningarfundur

rannsókn kjörbréfa.

[15:16]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég er nú ósammála ýmsu í ræðu hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar en það er eitt atriði sem hann vék að í máli sínu sem mér finnst rétt að svara eða koma með athugasemd við og það varðaði það atriði sem hann nefndi um hæfi starfsmanna Alþingis eða starfsmanns Alþingis. Af því tilefni er rétt að geta þess að hv. þm. Björn Leví Gunnarsson bókaði um það á lokastigum í starfi nefndarinnar, boðaði bókun á föstudaginn og hún fór síðan inn í bókun í gær. Aðrir nefndarmenn bókuðu andstæða skoðun, getum við sagt, við mat hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar, ég vildi að það kæmi fram. Allir aðrir nefndarmenn voru samstiga um það að taka aðra afstöðu í þessu heldur en hv. þingmaður. Það byggði á því að það væri ekki tilefni til þess að draga í efa hæfi starfsmanns eða starfsmanna Alþingis í þessu samhengi vegna ýmissa þátta. En aðalatriðið er auðvitað að allir þeir textar sem frá undirbúningsnefnd og kjörbréfanefnd koma eru marglesnir, margyfirfarnir af nefndarmönnum sjálfum sem auðvitað bera alla ábyrgð á því sem þar stendur. Mismunandi starfsmenn Alþingis hafa komið með mismunandi innlegg í einstaka hluta, yfirleitt samkvæmt óskum okkar í nefndinni, þannig að þegar af þeirri ástæðu er ekki ástæða til að draga þetta inn í. Við það má svo bæta að sá starfsmaður skrifstofu Alþingis sem gegnt hefur ritarastörfum fyrir landskjörstjórn er hvort sem er ekki til neinnar athugunar eða störf landskjörstjórnar til neinnar athugunar af hálfu þessara nefnda.