rannsókn kjörbréfa.
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að karpa mikið við hv. þingmann út af þessu. Ég vildi bara koma því sjónarmiði skýrt á framfæri að aðrir nefndarmenn hefðu verið á annarri skoðun en hv. þm. Björn Leví Gunnarsson um þetta. Í morgun fengu nefndarmenn, að ég hygg allir, samantekt frá skrifstofu Alþingis um þetta efni sem mér finnst ekki gefa tilefni til að hafa áhyggjur af þessum þætti. En það voru auðvitað vonbrigði að þetta atriði á síðustu metrunum skyldi verða til þess að hv. þm. Björn Leví Gunnarsson treysti sér ekki til að skrifa undir greinargerðina sem við öll höfum unnið að í allan þennan tíma. En ég þykist vita að það breyti samt ekki því að hann sé að langmestu leyti sammála því sem fram kemur í greinargerðinni því að hann hafði auðvitað haft sömu aðkomu að gerð hennar eins og við öll hin.