152. löggjafarþing — þingsetningarfundur

rannsókn kjörbréfa.

[15:21]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Virðulegi forseti. Ég hef ekki neinu við það að bæta sem hv. þm. Birgir Ármannsson tjáði okkur hér í nefndaráliti meiri hluta kjörbréfanefndar í upphafi þingfundar og sé ekki ástæðu til að lengja fundinn okkar hvað það varðar. Ég vil bara tíunda það og ítreka enn og aftur að það hefur verið virkilega krefjandi en um leið ánægjulegt að finna þann góða vilja og þann samhug og eiga þetta góða samstarf sem við höfum átt, fyrst í undirbúningskjörbréfanefnd og síðan kjörbréfanefnd. Ég var að vísu með það frá byrjun að ég hefði viljað sjá þriðju talninguna þannig að við hefðum í það minnsta getað með því móti slegið út af borðinu þá annmarka sem við höfum öll sagt að hafi verið til staðar, þó svo að við leggjum á lokametrunum mismunandi skilning og áherslur á vægi þeirra, svona þegar við erum komin þar að leiðir í rauninni skildu og greindust að þarna rétt undir lokin.

Ég vona bara að allir verði sáttir eins og kostur er, auðvitað vitum við að það verður ekki þannig, en a.m.k. að við virðum skoðanir hvert annars og virðum hvert annað í hvívetna og fyrst og síðast, þar sem við erum vonandi að hefja alveg frábærlega farsælt kjörtímabil skulum við bara vera góð hvert við annað. Kærleikurinn kostar ekkert.