rannsókn kjörbréfa.
Frú forseti. Fyrir þinginu liggur að taka afstöðu til samþykktar kjörbréfa þeirra þingmanna sem kjörnir voru í alþingiskosningunum sem fram fóru 25. september síðastliðinn. Að venju kom undirbúningsnefnd saman til að undirbúa vinnu kjörbréfanefndar sem skipuð var á fyrsta þingfundi og vann undirbúningsnefnd gríðarlega yfirgripsmikla greinargerð eftir ítarlega rannsókn sína á málavöxtum. Mikill einhugur var innan nefndarinnar um fagleg og gegnsæ vinnubrögð sem nefndin fylgdi í hvívetna. Ég vil byrja á því að þakka nefndarmönnum og starfsfólki skrifstofu Alþingis sérstaklega fyrir samstarfið.
Undirbúningskjörbréfanefnd hélt opna fundi með fræðimönnum og fékk til sín fjölda gesta, tók saman málsatvikalýsingu og kannaði kjörgögn í Norðvesturkjördæmi ítarlega. Sú rannsókn leiddi í ljós í mínum huga að hægt er að treysta þeim niðurstöðum sem yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis sendi landskjörstjórn og landskjörstjórn byggði ákvörðun sína um útgáfu kjörbréfa á. Er það mín skoðun að þær niðurstöður endurspegli vilja kjósenda í kjördæminu og mun ég nú fara yfir þau rök sem liggja að baki niðurstöðu minni.
Eins og þingheimi öllum er kunnugt er hér um veigamikið og alvarlegt viðfangsefni að ræða. Sem kunnugt er gerir stjórnarskráin ráð fyrir því að Alþingi sjálft skeri úr um hvort þingmenn séu rétt kjörnir. Fellur það í skaut kjörbréfanefndar að prófa kjörbréf og kosningu nýkjörinna þingmanna. Til að greiða fyrir þeirri rannsókn kvaddi starfandi forseti Alþingis saman undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa og hefur hún haft til athugunar kjörbréf þau sem landskjörstjórn gaf út 1. október í samræmi við úrslit alþingiskosninga 25. september. Samkvæmt lögum um störf undirbúningsnefndar skal nú taka til skoðunar kosningu þingmanna og kjörgengi þeirra ásamt ágreiningi og bókunum sem umboðsmenn hafa gert við úrskurð og framgang kosninganna ásamt kosningakærum. Undirbúningsnefndin samþykkti að um störf nefndarinnar giltu ákvæði laga um þingsköp og starfsreglur fastanefnda Alþingis eftir því sem við var komið. Þá setti nefndin sér verklagsreglur sem staðfestar voru af forseta Alþingis. Fordæmalaust er að undirbúningsnefnd hafi haft svo yfirgripsmikið verkefni fyrir höndum í kjölfar alþingiskosninga á Íslandi. Nefndin hélt 34 formlega fundi og birti gögn sín jafnóðum ásamt fundargerðum, auk þess að skila hinni eiginlegu kjörbréfanefnd heildstæðri greinargerð við rannsókn sína.
Í greinargerðinni er farið yfir þá annmarka sem nefndin telur að hafi verið á framkvæmd alþingiskosninganna en ástæða er til að taka skýrt fram að annmarki sem kann að vera á kosningaferli leiðir samkvæmt lögum ekki sjálfkrafa til ógildingar þeirra kosninga. Í ljósi ábendinga landskjörstjórnar er varðar vörslu kjörgagna í Norðvesturkjördæmi rannsakaði nefndin þann annmarka sérstaklega vandlega og eru rannsókninni gerð góð skil í greinargerðinni.
Það er alveg ljóst í mínum huga, frú forseti, að sá annmarki er verulegur og víða er pottur brotinn í því ferli sem fram fór við flokkun og talningu atkvæða í kjördæminu. Ég hvet þingmenn til að kynna sér málavaxtalýsingu í greinargerð undirbúningsnefndarinnar til að glöggva sig frekar á málavöxtum. Í 3. mgr. 120. gr. laga um kosningar til Alþingis hefur Alþingi markað þá stefnu að við ágreining um gildi alþingiskosninga skuli liggja til grundvallar sú meginregla að ekki beri að úrskurða kosningu þingmanns ógilda ef sýnt er fram á að annmarkinn hafi ekki haft áhrif á úrslit kosninganna. Með öðrum orðum þarf að liggja fyrir rökstuddur grunur um orsakatengsl á milli annmarkans og niðurstöðu kosninganna. Álitaefnið snýr því fyrst og fremst að því hvort hægt sé að treysta niðurstöðu kosninganna þrátt fyrir annmarkann sem snýr að vörslu kjörgagna og í því tilliti verður að líta til þeirra atriða sem nefndin hefur rannsakað og fjallað um.
Í fyrsta lagi ber að líta til þess að nefndin kemst að þeirri niðurstöðu í greinargerð sinni að ekkert í athugun hennar bendi til þess að átt hafi verið við kjörgögnin. Upplýsingar úr eftirlitsmyndavélum sýna að á meðan oddviti yfirkjörstjórnar er einn með kjörgögnum um hádegisbil 26. september var starfsfólk hótelsins við störf á svæðinu á sama tíma. Bæði formaður yfirkjörstjórnar og starfsfólk neitar því að hafa átt nokkuð við kjörgögnin áður en athugun hófst í kjölfar þess að símtal barst frá landskjörstjórn um að mjótt væri á mununum í kosningunum. Því má segja að oddviti hafi í raun ekki verið einn á svæðinu og ólíklegt að hann hafi haft hvata eða tækifæri til að eiga við gögnin. Út frá fyrirliggjandi gögnum er mjög ólíklegt að starfsfólk hótelsins hafi haft svigrúm til að eiga við gögnin enda bendir ekkert til þess að svo hafi verið.
Í greinargerðinni kemur fram að við skoðun undirbúningsnefndarinnar stemmdi fjöldi notaðra atkvæðaseðla og ónotaðra við heildarfjölda atkvæðaseðla sem sendir voru út í kjördeildir í Norðvesturkjördæmi. Undirbúningsnefndin fór einnig yfir auða og ógilda atkvæðaseðla í athugun sinni og stemmdar voru af atkvæðatölur framboðslista D, C, J og M-lista, en þar höfðu mestar tilfærslur orðið frá fyrri tölum til þeirra sem yfirkjörstjórn sendi frá sér í skýrslu til landskjörstjórnar. Þar að auki fór undirbúningsnefnd yfir öll kjörgögn í Norðvesturkjördæmi og fletti í gegnum hvern einasta seðil. Ljóst er að þau frávik í flokkun atkvæða sem þar komu fram breyta ekki niðurstöðu kosninganna í Norðvesturkjördæmi. Því taldi undirbúningsnefndin ekki þörf á því að ráðist yrði í heildarendurtalningu atkvæða. Mikilvægt er að halda þessari staðreynd til haga. Allar þessar athuganir benda til þess að ekki hafi verið átt við atkvæðaseðlana á meðan kjörgögn voru óvarin er yfirkjörstjórn gerði hlé á fundi sínum. Samkvæmt þeim upplýsingum sem undirbúningsnefndin aflaði var verklagi breytt við talningu yfir nóttina og kann það að hafa aukið líkurnar á flokkunarvillum og orsakað þær breytingar sem urðu á atkvæðatölum framboðslista við seinni talningu. Sú skýring að breytingar hafi átt sér stað vegna mannlegra mistaka verður því að teljast afar líkleg.
Virðulegi forseti. Ég vil halda því til haga að sá annmarki sem lýtur að vörslu kjörgagna í Norðvesturkjördæmi er sannarlega til staðar. Að því sögðu er hann ekki til þess fallinn að hafa áhrif á niðurstöðu kosninganna í Norðvesturkjördæmi. Engar vísbendingar eru heldur til staðar um að þingmaður, umboðsmaður hans eða meðmælendur hafi vísvitandi átt sök á þeim annmarka sem snýr að vörslu kjörgagna. Það er mín afstaða að yfirkjörstjórn hafi borið samkvæmt skyldum sínum að endurtelja atkvæði þegar villur í flokkun komu í ljós. Algengt er að talið sé aftur í kosningunum, til að mynda ef afstemming gengur ekki upp í samningaferli. Ekki er hægt að líta til þess að villur sem koma upp við flokkun og talningu og eru síðan leiðréttar hafi í eðli sínu haft áhrif á niðurstöður kosningarinnar þar sem þær niðurstöður höfðu ekki verið staðfestar af yfirkjörstjórn né sendar til landskjörstjórnar sem staðfestir lokatölur í kjördæminu. Þess má einnig geta að breyting á niðurstöðum kosninga getur einnig fræðilega átt sér stað við úrskurð vafaatkvæða, svo dæmi séu tekin. Því lýkur raunar ferli kosninga ekki fyrr en Alþingi hefur úrskurðað kjörbréf þingmanna gild.
Virðulegi forseti. Það er hlutverk okkar að kanna hvort vilji kjósenda hafi náð fram að ganga í þeim kosningum sem fram fóru 25. september á lagalegum forsendum. Hnökrar á þeirri framkvæmd leiða, sem fyrr segir, ekki sjálfkrafa til þess að kosningar séu gerðar ógildar. Kjósendur eiga að geta treyst því að úrslit kosninga standi og að lýðræðislegur vilji þeirra sé virtur. Sú skoðun að annmarki sem ekki er hægt að sýna fram á að hafi haft áhrif á úrslit kosninga leiði til ógildingar er í andstöðu við lýðræðislegan rétt kjósenda sem kusu í góðri trú um að niðurstaða kosninganna skyldi standa.
Sú athugun sem fram hefur farið af hálfu kjörbréfanefndar hefur leitt í ljós þörf fyrir mun ítarlegri vinnu er snýr að nýjum kosningalögum á Íslandi. Mikilvægt er að búa þannig um hnútana að kosningaferlið hér á Íslandi sé að mestu samræmt. Það er sárt til þess að hugsa að ágallar og skortur á formfestu auk mannlegra mistaka skuli varpa skugga á grundvallarforsendur lýðræðisins. Það góða fólk sem í þegnskylduvinnu starfaði við kosningarnar í góðri trú hefur mátt þola mikið álag vegna þeirrar atburðarásar sem rakin er í greinargerð undirbúningsnefndar. Þau vonbrigði sem felast í hlutskipti þeirra frambjóðenda sem um tíma voru inni eru einnig mjög skiljanleg og finn ég til með þeim og stuðningsmönnum þeirra. Sama má segja um þá þingmenn sem í allan þennan tíma hafa þurft að bíða í óvissu með hlutskipti sitt.
Frú forseti. Það kemur nú samkvæmt stjórnarskrá til kasta þingheims að úrskurða um gildi kjörbréfa sem landskjörstjórn hefur gefið út. Það er sannfæring mín að úrskurða beri kjörbréf 63 þingmanna gild út frá þeim gögnum sem liggja fyrir og þeim lagalega grundvelli sem kosningalögin kveða á um. Ég vil að lokum ítreka þakkir mínar til formanns og nefndarmanna í kjörbréfanefnd fyrir gott samstarf sem einkennst hefur af virðingu og vönduðum vinnubrögðum.
Ég hef lokið máli mínu.