152. löggjafarþing — þingsetningarfundur

rannsókn kjörbréfa.

[16:10]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég vil fá að byrja á því að lýsa yfir vonbrigðum með að við séum í dag í þeirri stöðu sem við okkur blasir, að vinnubrögð yfirkjörstjórnar í einu kjördæmi hafi orðið til þess að kalla þurfti á sérstaka rannsókn af hálfu þingsins, rannsókn sem staðið hefur vikum saman, að rannsaka hafi þurft vinnubrögð, framkvæmd, hvernig atkvæði kjósenda voru tryggð og varin. Það eitt og sér er áfellisdómur yfir störfum þeirra sem um ræðir. Ég vil að sama skapi lýsa því yfir að mér hefur fundist undirbúningskjörbréfanefnd þingsins nálgast þetta viðfangsefni og þessa rannsókn af virðingu fyrir verkefninu og ég þakka henni kærlega fyrir vel unnin störf.

Mér hefur heyrst og sýnst, bæði í þessum sal og í opinberri umræðu, að innan kjörbréfanefndar sé einhugur um að ágallar á vörslu kjörbréfa í þessu kjördæmi hafi verið alvarlegir. Ég held reyndar að um það verði einfaldlega ekki deilt eða fram hjá því litið. Álitaefnið er þess vegna hvaða afleiðingar þeir alvarlegu ágallar eiga að hafa. Verkefnið sem hér er undir er hvort kjörbréfin sem um ræðir verði samþykkt eða ekki og annað ekki. Þar finnst mér skipta máli að verkefnið er eingöngu að leggja mat á ágallana og vinnubrögðin í samhengi við skilyrði laga. Ég get ekki leyft mér að láta afstöðu mína til uppkosninga ráða för í því hvaða augum ég lít galla á framkvæmdinni í þessu kjördæmi. Það er sjálfstætt mat á framkvæmd kosninga og vinnubrögðum sem ræður för og á að ráða för. Ég byggi afstöðu mína á fyrirliggjandi gögnum og heildstæðu mati mínu á atvikum og ég viðurkenni það alveg að mér hefur fundist ákvörðun í þessu máli mjög erfið. Ég sé hana þannig að hér takist á tvö grundvallarmarkmið og tvö grundvallarsjónarmið og jafnvægislistin þar á milli. Annars vegar er það að kosningar þjóna auðvitað því augljósa hlutverki að leiða fram vilja kjósenda. Það er réttur kjósenda að sá vilji komist til skila. Kosningarrétturinn er auðvitað, eins og við þekkjum öll, grundvallarréttur fólksins í landinu og vilji fólksins á að fá að standa. Kjósendur verða um leið að geta treyst því að atkvæði þeirra komist til skila með réttum hætti. Það er líka lýðræðislegur réttur og jafn mikilvægur réttur kjósandans að umgjörð kosninga sé með þeim hætti að hægt sé að treysta niðurstöðum, að hægt sé að treysta því að viljinn hafi komist til skila. Það er grundvallarréttur.

Mér finnst blasa við að það þarf mikið til að koma til að atkvæði kjósenda verði ógild, að kosning verði ógild, og þá má ekki nálgast verkefnið þannig að smávægileg frávik frá lögum geti orðið til þess að svo fari. Það er hættuleg hugmyndafræði, hún er hættuleg lýðræðinu. Við þurfum að vera meðvituð um þetta og við þurfum að vera markviss um að verja vilja kjósandans frá þeirri hættu að hægt sé að ýta honum til hliðar, í burtu, vegna atriða sem hafa litla eða enga þýðingu fyrir framkvæmd kosninga. En hitt atriðið er að þær reglur sem þingið hefur sett sér um framkvæmd kosninga þjóna einmitt þeim tilgangi að verja þennan rétt kjósandans og þann rétt að geta treyst því að viljinn komist réttur til skila. Þess vegna höfum við sett reglur í kosningalögum um skyldur og ábyrgð þeirra sem sjá um framkvæmd kosninga. Það er líka mikilvægt að líta ekki bara á þær reglur sem form formsins vegna. Þessar reglur um vinnubrögð, þessar reglur um framkvæmd, þessar reglur um talningu o.s.frv., við þekkjum hvaða ágallar eru hér undir, eru settar í öryggisskyni einmitt til að verja heilagan rétt kjósandans. Við getum því heldur ekki leyft okkur þann munað að nálgast verkefnið þannig að við ætlum að samþykkja öll vinnubrögð, alla ágalla, sama hvað, ef þau leiða til þess að við erum ekki örugg um niðurstöðuna. Við getum ekki samþykkt að almenningur geti ekki treyst því að niðurstöður kosninganna spegli ekki vilja þeirra.

Virðulegi forseti. Fyrir liggur í þessu tiltekna kjördæmi að í mörgum atriðum var farið gegn skýrum ákvæðum laga um hvernig ætti að standa að því að verja atkvæði kjósenda og um leið önnur atriði eins og hvernig skyldi fara með vafaatkvæði. Strax af bókun landskjörstjórnar sjáum við alvöru málsins ljóst. Bókunin er söguleg og ber með sér að landskjörstjórn taldi ekki að fram væru komnar upplýsingar um að vinnubrögð hefðu verið með þeim hætti að hægt væri að blessa þau vinnubrögð. Þar er rakið í bókuninni og segir orðrétt, með leyfi forseta:

„Svo landskjörstjórn geti byggt úthlutun þingsæta á traustum grunni þarf hún að ganga úr skugga um að skýrslur yfirkjörstjórna um atkvæðatölur séu byggðar á fullnægjandi upplýsingum.“

Þarna koma fram ákveðin lykilstef: Traustur grunnur ákvæðanna, fullnægjandi upplýsingar um úthlutun þingsæta. Þar var líka rakið að frávik í niðurstöðum kosninganna í Norðvesturkjördæmi, frá því sem kynnt hefur verið í fjölmiðlum, reyndust hafa áhrif á úthlutun jöfnunarsæta. Þess vegna var farið í það að reyna að afla nánari upplýsinga frá yfirkjörstjórnum um framkvæmd flokkanna og talningar í öllum kjördæmum en sérstaklega óskað eftir því að yfirkjörstjórnin í Norðvesturkjördæmi veitti upplýsingar um verklag við endurtalningu, um hvað skýrði mun á heildarfjölda atkvæða og breytingu á fjölda ógildra seðla milli talningar og endurtalningar, verklag við endurtalningu, breytingu á fjölda ógildra seðla og útskýringar þar á — augljóst að hér er um grundvallarþætti um framkvæmd kosninga að ræða. Niðurstaða landskjörstjórnar var sú, eins og við þekkjum, að ekki hefði borist staðfesting frá yfirkjörstjórninni um að meðferð og varsla kjörgagna hefði verið fullnægjandi.

Fyrir Alþingi eða undirbúningskjörbréfanefnd hefur þá legið, og hún hefur lagst í þá rannsókn, að skoða atvik málsins, rýna gögnin eftir fremsta mætti, og mér finnst hún eiga hrós skilið fyrir störf sín í þeim efnum, og lagaumgjörð málsins. Landskjörstjórn sagði í bókun sinni, með leyfi forseta, um það sem hér lá undir:

„Hefur landskjörstjórn þá jafnframt í huga mikilvægi þess að almennt ríki traust um framkvæmd kosninga.“

Þessi orð hafa í mínum huga mikla þýðingu; „mikilvægi þess að almennt ríki traust um framkvæmd kosninga“. Í framhaldinu rekur landskjörstjórn, eins og við þekkjum líka, að það sé hlutverk þingsins að kanna, með leyfi forseta, „hvort til staðar kunni að vera þeir gallar á framkvæmd kosninga sem ætla megi að hafi haft áhrif á úrslit þeirra …“

Af þessum orðum er augljóst að landskjörstjórn er að flagga því til þingsins að vafi þyki leika á um þetta atriði. Hún flaggar því að þarna kunni að vera vankantar svo miklir að þeir geti hafa haft áhrif á úrslit kosninga. Og það er viðfangsefni okkar í dag og hefur verið viðfangsefni undirbúningskjörbréfanefndarinnar undanfarnar sjö til átta vikur.

Það er ekki svo að þingið hafi þurft átta vikur til að sitja og lesa og rýna 3. mgr. 120. gr. kosningalaga, eins og virðist vera skilningur einhverra hér innan þingsins. Viðfangsefnið er ögn flóknara en svo, mönnum dugar ekki að vera bara læsir. Viðfangsefnið er ekki heldur hvort okkur finnist þægilegra eða einfaldara að geta haldið áfram þingstörfum strax á morgun, og ekki af því hver afstaða okkar er um það að uppkosning fari fram. Ókostir hennar og óhagræði blasir við og uppkosning er í mínum huga vondur kostur. En viðfangsefnið má ekki heldur vera þannig að einhver sjái sér tækifæri í því að láta kjósa í einu kjördæmi aftur eða á landinu öllu eða hræðist að fara í uppkosningu.

Virðulegi forseti. Vinnubrögð oddvita yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi hafa að mínu viti í sjálfu sér grafið undan trausti fólks. Það er að mínu viti, eins og ég nefndi í byrjun, áfellisdómur sú staðreynd að þessi umfangsmikla og yfirgripsmikla rannsókn hafi þurft að eiga sér stað og hafi þurft að fara fram. Með því er brotið gegn trausti almennings, að svona hafi þurft að fara. Það liggur líka fyrir að við seinni talningu atkvæða urðu breytingar á atkvæðatölu framboða í þessu kjördæmi sem höfðu áhrif á úthlutun jöfnunarsæta í kjördæminu og á landsvísu. Það eru aðrir þættir eins og að auðum seðlum fækkar að mig minnir um 12 og ógildum seðlum fjölgar að mig minnir um 11. Þess vegna liggur fyrir að þær breytingar sem urðu leiddu til þess að niðurstaða hreyfðist, hún breyttist. Nýjar tölur höfðu áhrif á úrslit þessa kjördæmis og önnur kjördæmi í landinu. Við þekkjum auðvitað þá sögu öll, þessa dramatísku breytingu; glerþakið sem var brotið reyndist alls ekki vera brotið o.s.frv. Fimm þingmenn detta út, fimm fara inn. Og það er auðvitað töluverð breyting á Alþingi þar sem sitja 63 þingmenn.

Virðulegi forseti. Af hálfu undirbúningskjörbréfanefndar hefur lengra verið gengið en áður við vinnu nefndarinnar og nefndin á í mínum huga, og ég held í huga okkar allra hér inni, þakkir skildar fyrir það vinnuframlag. Það hefur mikil vinna verið lögð í það að reyna að varpa ljósi á atvik máls og upplýsa, en engu að síður eru þættir um framkvæmdina sem standa út af og eru þessi atriði hin sömu og landskjörstjórn flaggaði. Hin mikla vinna hefur því ekki alfarið eytt óvissu í þeim efnum. Ég minni á orð landskjörstjórnar um traustan grunn ákvarðana og fullnægjandi upplýsingar um úthlutun þingsæta. Myndin af vörslu atkvæða er orðin skýrari en hún er ekki orðin betri. Það liggur fyrir að atkvæði voru óvarin þvert gegn ákvæðum laga og þvert gegn tilgangi laga í nokkrar klukkustundir. Og eins og ég nefndi áðan, og mér hefur fundist vera rauður þráður í öllum ræðum hér í dag, þá voru auðvitað alvarlegir ágallar á framkvæmd kosninga, ágallar sem fóru í bága við skýr ákvæði laga og fóru í bága við þau ákvæði laga sem þjóna því mikilvæga hlutverki að verja atkvæði. Þessi ákvæði í kosningalögunum vernda mismikla og stóra hagsmuni og þarna er verið að fara í bága við lög sem eiga að verja atkvæðin sjálf.

Í mínum huga eru veigamestu atriðin þessi frávik frá reglum um hvernig verja á kjörgögn, að kjörgögnin stóðu óvarin í einhverja klukkustundir í opnum kössum í rými sem ekki var læst að öllu leyti. Það er auðvitað alltaf alvarlegur ágalli. Upplýsingar um meðferð ógildra atkvæða eru óljósar og það eru sömuleiðis skýringarnar á breytingum sem urðu á atkvæðatölum framboða. Þær eru óljósar. Ég get ekki og ég ætla ekki að hafa skoðun á því af hvaða ástæðum það var enda liggur það ekki fyrir. Ég er í því sambandi, og undirstrika og árétta það sérstaklega að ég er ekki að dylgja eða draga úr, ekki að tala um heilindi eins eða neins í því samhengi, ég er einfaldlega að benda á þessar staðreyndir, að skýringarnar liggi einfaldlega ekki alveg fyrir. Það hefur ekki verið upplýst hvernig fjölgun hinna ógildu seðla er til komin, hvaða ágallar hafi verið á þeim sem urðu þess valdandi að þeir voru metnir ógildir. Og síðan stendur auðvitað eftir að örfá atkvæði í þessu kjördæmi bæði gátu haft og höfðu mikil áhrif á niðurstöður í þessu kjördæmi og í öðrum. Þegar þessir þrír þættir eru vegnir saman, virtir saman heildstætt, er það mat mitt að við séum á brauðfótum varðandi það að staðfesta kjörbréf í kjördæminu.

Virðulegi forseti. Ég hóf mál mitt á því að segja að það eru vonbrigði að þetta mál sé til meðferðar í þessum sal og að þessi staða hafi komið upp. Ég hef bæði samúð með og ber virðingu fyrir ólíkum sjónarmiðum um það hvernig leysa eigi úr málinu og ég veit að atkvæðagreiðsla í þessu máli fer ekki að öllu leyti eftir flokkspólitískum línum og að innan flokka eru ólík sjónarmið. Ég ætla að leyfa mér að ganga út frá því að við séum öll að nálgast málið út frá mati á því hversu alvarlegur ágallinn sé út frá skilyrðum laga. Ég finn hins vegar að ég ber sjálf ekki traust til þess að framkvæmdin standi undir þeim kröfum sem við gerum til að verja atkvæðin og verja vilja kjósenda. Traustið er í mínum huga einnig sjálfstæð breyta í þessu máli þótt það sé ekki það atriði sem ræður úrslitum í mínum huga. En það er viðurkennt sjónarmið að kerfið þarf að virka og það þarf að birtast almenningi með þeim hætti að svo sé.

Breytingarnar urðu þær sem reyndin varð og á þeim höfum við einfaldlega ekki að öllu leyti fullnægjandi skýringar. Það er í mínum huga mjög alvarlegt mál að ógilda kosningar út frá því meginsjónarmiði að kjósendur eigi að geta treyst því að lýðræðislegur vilji þeirra sé virtur og að hann komi fram í birtum tölum. Kjósendur eiga að geta treyst því að úrslit fái að standa, að það þurfi mikið til að koma til að eiga við það. En ekki gleyma því að það er að sama skapi alvarlegt mál að líta fram hjá þeim varnarmekanisma sem settur er í lög einmitt til að verja rétt kjósandans. Og hér liggja fyrir alvarlegir ágallar. Það er óvissa um nokkra þætti og það liggur fyrir að það urðu breytingar sem höfðu áhrif yfir landið allt. Reglurnar þjóna þeim tilgangi að réttur kjósandans og vilji sé varinn og tryggður. Ég hef spurt mig að því hvort með þessari nálgun sé verið að setja markið eða þröskuldinn lágt, of lágt, hættulega lágt. Verði þessi niðurstaða ofan á, verður þá með vísan í slíkt fordæmi hægt að ógilda kosningar með vísun í einhverjar smávægilegar yfirsjónir? Nei, það er nefnilega ekki þannig. Ágallinn var þess eðlis og svo alvarlegur að hann er langt umfram það.

Virðulegur forseti. Þetta mál er í mínum huga flókið en um leið einfalt. Og þegar málið er dregið saman þá eru þarna nokkrir þættir, í mínum huga fyrst og fremst þrír, sem verka þannig saman að þegar málið er metið heildstætt þá er það niðurstaða mín að ógilda kosningarnar í Norðvesturkjördæmi, enda þótt það muni leiða til uppkosningar, eins lítið spennandi og sá kostur er í mínum huga.